157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:52]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það eru reyndar fjölmörg atriði sem við hefðum viljað ræða við formann nefndarinnar. Það var ekki gefinn tími í svona umræðu innan nefndarinnar en Hagfræðistofnun Háskóla Íslands kom vissulega með sína skýrslu. Þar spurði sá sem hér stendur nokkurra spurninga sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gat ekki svarað og það væri áhugavert að fá svar við. Mig langar að heyra mat formanns utanríkismálanefndar á því hvort ekki hefði verið mikilvægt, af því að hann sagði að þetta væri mikilvæg heimild og í rökum meiri hlutans og aðildarsinna halda menn því fram, t.d. með húsnæðiskostnað — hefði ekki verið áhugavert að fá samanburð á húsnæðiskostnaði á Íslandi og í öðrum löndum og skuldahlutfalli íslenskra heimila miðað við Norðurlöndin, svo dæmi séu tekin? Stöðugleiki evrunnar, sem Hagfræðistofnun svaraði reyndar til að stöðugleiki krónunnar hefði verið meiri á síðustu misserum heldur en evrunnar, og jafnvel síðustu árum. Ekki síst að spyrja, af því að mér fannst formaðurinn skauta svolítið yfir það í sínu máli, um afdrif landbúnaðar vegna þeirra undanþágna sem hann hefur fengið. (Forseti hringir.) Hagfræðistofnun skautaði algerlega yfir það. Ég spurði: Hver er reynsla Norður-Svía, Norður-Finna og Möltubúa (Forseti hringir.) af þeim undanþágum sem þeir fengu? Hvernig er landbúnaðurinn í dag öllum þessum árum síðar? Það er áhugavert. (Forseti hringir.) Þannig munu afdrif íslensks landbúnaðar verða nokkuð augljós.