157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:56]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. framsögumanni fyrir framsöguna í þessu viðamikla máli. Ég ætla að einskorða mig í þessari fyrirspurn við kaflann um auðlindirnar, bæði almennt og sértækt, í ljósi viðbragða hæstv. utanríkisráðherra við fyrirspurn minni í óundirbúnum fyrirspurnatíma fyrr í dag þar sem hæstv. utanríkisráðherra kom sér algerlega undan því að svara beinni spurningu minni um það hvort ekki sé eðlilegt að það verði settar niður samningsforsendur, formlegar samningsforsendur og í rauninni um leið afmarkað umboð stjórnvalda til aðildarviðræðna, áður en til þjóðaratkvæðagreiðslu kemur. Hæstv. utanríkisráðherra gat ekki svarað mér þessu. Ég vil spyrja hv. framsögumann málsins um það vegna þess að hér var gefinn ádráttur um ákveðna útfærslu á hagsmunagæslu Íslands varðandi sjávarútvegsauðlindirnar þar sem er vísað í að það þurfi að vera hluti af frumrétti. Telur framsögumaður ekki eðlilegt (Forseti hringir.) að þingið geri þá kröfu að sá ádráttur sem hér kemur fram í nefndarálitinu verði formfestur með einhverjum hætti (Forseti hringir.) með samningsforsendum af hálfu ríkisstjórnarinnar þannig að það sé aðhald fyrir þá sem ætla að fara fyrir viðræðum, komi til þess að þjóðin segi já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu?