157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:58]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar andsvar. Þetta er angi af svona ákveðinni umræðu sem ég hef líka áður heyrt, menn höfðu haldið því fram að gömlu samningsmarkmiðin hefðu bara verið orð á blaði og ekki einu sinni verið kynnt fyrir mótaðilum. Staðreyndin er sú og maður veit það vel að það sem hér verður samþykkt og þetta meirihlutaálit verður auðvitað þýtt yfir á mörg tungumál og mótaðilar munu hafa það fyrir framan sig þegar við okkur verður talað. Ég veit það, hafandi talað við þau sem stóðu í þessum samningum fyrir Íslands hönd síðast, að þau litu á álit meiri hluta utanríkismálanefndar á sínum tíma sem algerlega, svo ég noti þeirra orð, Biblíu, þegar kom að því að semja um þessi mál fyrir Íslands hönd. Ég vil meina að þau markmið sem hér eru sett fram séu nokkuð skýr, á svipaðan hátt og þau voru nokkuð skýr síðast þegar við fórum í þessa vegferð.