157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:59]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Gefum okkur það umræðunnar og rökræðunnar vegna að hér séu samningsmarkmiðin skýr í þessu nefndaráliti. Ég get tekið undir það sem segir í nefndarálitinu að það sé grundvallarskilyrði að sérstaða Íslands komi fram, verði af aðildarviðræðum, í kröfu um að sérstaða Íslands verði hluti af frumrétti, fái stöðu frumréttar Evrópusambandsins. Gefum okkur það, rökræðunnar vegna, að við séum sammála og getum sammælst um þetta nefndarálit og ég er ekki fjarri þeirri hugsun sem þar kemur fram. Hins vegar kom fram í andsvari hv. framsögumanns hér rétt á undan mér sá skilningur að það verði ekki gerð krafa um það að Ísland standi utan við sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Með þessum orðum fannst mér hv. framsögumaður í rauninni blása þessu frá og fara að rugla þessu máli öllu saman og einmitt renna stoðum undir ábendingar um að þessi afstaða stjórnvalda og meiri hluta nefndarinnar sé bara ekki nógu skýr. Þess vegna spyr ég aftur: Er ekki full ástæða til þess þegar umræðu um þetta mál lýkur (Forseti hringir.) og afgreiðslu málsins hér á þingi lýkur að stjórnvöld rammi inn samningsforsendur, samningsmarkmið (Forseti hringir.) og afmarki umboð íslenskra stjórnvalda til viðræðna sem fram kunna að fara, greiði þjóðin þessu máli atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu?