157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:00]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar síðara andsvar. Ég er ekki viss um að það myndi samrýmast, ef ég hef lesið álit Feneyjanefndarinnar vel, þá kannski samræmist ekki vel að setja fram einhvers konar skilyrtar spurningar. Við annaðhvort göngum til viðræðna við Evrópusambandið um hugsanlega aðild eða ekki. Ég myndi ekki leggja til að við myndum ganga til skilyrtra viðræðna við Evrópusambandið en við getum auðvitað sett fram okkar markmið og ef þau nást ekki þá verður sá samningur ekki undirritaður. Ástæðan fyrir því að ég er kannski örlítið tregur til þess að vera dreginn inn í umræðuna um hvort ég vilji fá undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni, vera hluti af henni eða ekki, er sú að markmiðið sem skiptir máli hér er að yfirráð okkar yfir sjávarútvegsauðlindinni séu tryggð og að þá tryggingu sé að finna í frumrétti sambandsins. Ein leiðin til þess, sem ég tel nokkuð raunhæfa alla vega, vel raunhæfa, er að lögsagan sé sjálfstætt íslenskt fiskveiðistjórnarsvæði og að þar gildi sérstakar reglur og að það sé að finna í aðildarsamningi, sem er frumréttur. Auðvitað væri líka hægt að fá breytingu á Rómarsáttmálanum (Forseti hringir.) þannig að Ísland væri undanþegið þessari stefnu yfirhöfuð. Ég tel það kannski örlítið minna raunsætt en auðvitað væri það leið sem myndi ganga líka.