157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:01]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Velsæld Íslands byggist á fullveldi þess og sjálfsákvörðunarrétti. Einn af hornsteinum íslenskrar utanríkismálastefnu eru traust og náin samskipti við sem flest ríki Evrópusambandsins, auðvitað helst við Norðurlöndin. Hagsældin grundvallast á greiðum viðskiptum með vörur og þjónustu við lykilmarkaðssvæði okkar. Samstarf okkar í dag við Evrópusambandið byggist á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sem er mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands, en við erum líka með um 35 fríverslunarsamninga, m.a. við Indland og Kína sem eru mjög vaxandi hagkerfi. Fyrsti minni hluti tekur jafnframt skýrt fram hér í upphafi að hann er ekki á móti því að þjóðin hafi lokaorðið um hvort ganga eigi til viðræðna við Evrópusambandið. Slík þjóðaratkvæðagreiðsla verður hins vegar að byggjast á vönduðum undirbúningi, opnum gögnum og hlutlægri kynningu og af öllu þessu höfum við nokkrar áhyggjur.

Það er kannski rétt í upphafi að velta fyrir sér hver staða Íslands er og í samanburði við Evrópusambandið. Það er áhugavert að skoða stöðu Íslands nærri 82 árum eftir að við urðum fullvalda, sjálfstæð lýðræðisþjóð árið 1944. Þróunin hefur verið sú að Ísland hefur farið frá því að vera ein af fátækari þjóðum Evrópu með einhæft atvinnulíf og lágt menntunarstig yfir í að vera ein ríkasta þjóð heims. Fleiri stoðir byggja nú undir efnahaginn, menntunarstig okkar hefur hækkað og velferð er sambærileg við það sem best gerist á Norðurlöndum. Okkur hefur tekist að byggja upp öflugt velferðarsamfélag, öflugt atvinnulíf og sterkar útflutningsgreinar sem gera lífskjör okkar ein þau bestu í heimi. Ísland er nær alltaf í fremstu röð í samanburði þjóða á ólíkum vettvangi, hvort sem litið er til kaupmáttar almennings, launa, sem um þessar mundir eru þau hæstu í Evrópu, hagvaxtar eða velsældarvísa sem mæla fleiri þætti velferðar en hagvöxt einan. Þá erum við ein hamingjusamasta þjóð heims, höfum verið talin ein öruggasta þjóð heims um langt skeið og erum efst á mælikvarða jafnréttis, svo að nokkur atriði séu nefnd.

Þau lönd sem Ísland er gjarnan í samanburði við á þessum listum eru Noregur, Sviss og Liechtenstein. Öll þessi lönd standa utan ESB. Innan ESB eru það Lúxemborg, Írland á síðustu misserum og önnur norræn ríki sem eru með okkur í efstu sætum þessara samanburðarlista. Því er eðlilegt að spyrja hvaða bættu lífskjör Ísland sé að sækja með aðildarumsókn að ESB. Það er líka eðlilegt að velta því fyrir sér: Til hvers höfum við barist í nærri 82 ár ef ekki fyrir öllum þeim árangri sem ég var að lýsa? Til hvers vorum við að berjast fyrir því að hafa hér óskorað fullveldi yfir öllum auðlindum þessa lands ef við ætlum síðan að fara í einhverja aðra vegferð?

Undanfarin ár hafa ríki ESB dregist aftur úr í samkeppni þjóða. Nýsköpun á undir högg að sækja og þar með aukin verðmætasköpun og fjölgun atvinnutækifæra, enda er atvinnuleysi í mörgum ríkjum Evrópusambandsins mun hærra en við munum nokkurn tímann sætta okkur við. Afleiðingin hefur þannig verið minni hagvöxtur, meira atvinnuleysi. Bandaríkin og mörg ríki í Asíu standa þannig langtum framar ríkjum ESB. Efnahags- og atvinnuþróun Íslands hefur um margt líkst meira þróuninni í Bandaríkjunum en í Evrópu. Það er áhugavert að skoða sérstaklega stöðuna annars staðar á Norðurlöndum. Áður hafði ég fjallað um stöðu Noregs sem eins og Ísland stendur utan ESB en innan EES-samningsins. Danir og Svíar hafa til að mynda valið að taka ekki upp evru sem gjaldmiðil og virðist það hafa gefið góða raun, sérstaklega í Danmörku. Svíar hafa glímt við lægri hagvöxt og nokkurt atvinnuleysi núna síðustu árin. Erfiðast standa Finnar. Frá bankakreppunni þar í landi upp úr 1990 hefur atvinnuleysi verið hátt, eða nær 10%, hagvöxtur lítill og efnahags- og atvinnuástand erfitt. Finnar gengu einmitt í ESB árið 1995 og tóku upp evru. Í samanburði við önnur norræn ríki virðist það fremur hafa hamlað jákvæðri þróun en hitt. Þá má benda á að húsnæðiskostnaður er mjög hár í Finnlandi og finnskar fjölskyldur eru mjög skuldsettar vegna eigin húsnæðis. Ég spurði hér formann utanríkismálanefndar, framsögumann málsins, af hverju við hefðum ekki fengið skýrari svör frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um einmitt samanburð á húsnæðiskostnaði og skuldsetningu heimila, til að mynda við Norðurlöndin eða önnur sambærileg lönd. Það er ein af þeim spurningum sem er ósvarað en meiri hlutinn og aðildarsinnar tala oft um að það sé einn af þeim góðu hlutum sem við gætum fengið við það að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru. Ég verð að segja alveg eins og er að ég efast um það.

Það er mikilvægt og Íslandi ber skylda, alveg eins og við höfum gert í þessi tæpu 82 ár í lýðræðisbaráttu okkar og mikilvægri baráttu fyrir stöðu okkar meðal annarra þjóða, til að varðveita forræði yfir auðlindum okkar. Ein sterkustu rökin fyrir því að hagsmunum Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins tengjast einmitt þeim. Ísland er fámennt ríki en býr að miklum náttúruauðlindum. Meginútflutningsstoðir þjóðarinnar byggjast að verulegu leyti á náttúruauðlindum, sjávarútvegi, endurnýjanlegri orku og ferðaþjónustu, eða náttúru landsins. Ákvarðanir um nýtingu, vernd og framtíð þessarar auðlindar verða að vera teknar á Íslandi og af lýðræðislega kjörnum fulltrúum á Íslandi. Við þekkjum sjávarútveginn. Við þekkjum þá stöðu sem hann er í á Íslandi. Formaður utanríkismálanefndar og framsögumaður málsins sagði hér í andsvörum fyrr í dag að við myndum að sjálfsögðu taka upp þessa sameiginlegu stefnu. Þá snýst þetta allt um að fá einhverjar undanþágur sem enginn annar hefur hingað til fengið. Orkumálin eru í dag ein helsta samkeppnisforsenda Íslands og lykill að atvinnuuppbyggingu, nýsköpun og orkuskiptum. Hvað sækjum við með því að ganga í og verða aðilar að Evrópusambandinu í þessum málaflokki? Ég efast um að það sé nokkuð. Íslenskur landbúnaður byggist á því að hér sé fæðuöryggi. Hann byggist líka á byggðasjónarmiðum, dýraheilbrigði, sérstöðu landsins og að tryggja afkomu og búsetu í dreifðum byggðum. Allt þetta er undir og meiri hlutinn hefur ekki svarað því í þessari vinnu, og þar af leiðandi í þeim upplýsingum sem við þurfum að koma til þjóðarinnar, því að það er þjóðin sem er að fara að taka ákvarðanir í þessu máli, hvaða afleiðingar það hefur að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Og við þekkjum auðvitað ferðaþjónustuna, hversu mikilvæg hún er hér.

Varðandi málsmeðferð nefndarinnar þá vil ég fyrst og fremst vísa í álit meiri hlutans varðandi þennan fjölda funda og gögn og allt það. En 1. minni hluti, sá sem hér stendur, og við í Framsókn, telur rétt að taka það fram að þrátt fyrir umfangsmikla formlega málsmeðferð var vinna nefndarinnar háð verulegri tímaþröng. Málið varðar eitt stærsta utanríkis- og stjórnskipunarmál þjóðarinnar en nefndinni var ætlað að ljúka vinnu sinni á mjög skömmum tíma til að mæta þeirri tímalínu sem ríkisstjórnin, framkvæmdarvaldið, hafði sett Alþingi skorður með. Það hefði verið betra að gefa nefndinni meiri tíma. Tímaþröngin hafði áhrif á raunhæfa möguleika nefndarinnar til að fara nægilega djúpt í efni málsins og kalla til þá aðila sem ástæða hefði verið til að heyra í og sérstaklega heyra í þeim aftur þegar öll gögn lágu fyrir og þegar þeir voru búnir að skila sínum skýrslum og nýjar spurningar höfðu vaknað. Það var ekki gefinn tími til þess.

Fyrsti minni hluti gagnrýnir sérstaklega að beiðnum um að kalla fleiri gesti fyrir nefndina hafi ekki verið sinnt með fullnægjandi hætti. Ég tel einnig að nefndin hefði átt að fá alla þá gesti sem óskað var eftir og einnig þá sem vildu koma fyrir nefndina, líka aftur og horfi ég nú á framsögumann málsins. Þeir gestir sem komu fyrir nefndina fengu jafnframt mjög takmarkaðan tíma til að gera grein fyrir umsögnum sínum og svara spurningum þótt um væri að ræða flókin álitaefni á sviði stjórnskipunarréttar, alþjóðaréttar, efnahagsmála, sjávarútvegs, landbúnaðar, orkumála og framkvæmdar þjóðaratkvæðagreiðslu. Slík vinnubrögð eru ekki í samræmi við þá vönduðu, yfirveguðu og upplýstu málsmeðferð sem gera verður kröfu um þegar fjallað er um mögulegar aðildarviðræður við Evrópusambandið. Sá sem hér stendur óskaði t.d. sérstaklega eftir því að Erna Bjarnadóttir, sem er sérfræðingur í landbúnaðarmálum, kæmi fyrir nefndina sem slík. Hún hafði veitt nefndinni umsögn. Því var hafnað. Ég held að við hefðum haft gott af því að heyra til að mynda það sem ég ræddi m.a. við framsögumann nefndarinnar í andsvari fyrr í dag, þ.e. hver áhrifin eru. Hver eru áhrifin? Hver er reynsla Norður-Svíþjóðar, Norður-Finnlands og Möltu, sem fengu vissulega einhverjar undanþágur sem meiri hlutinn og aðildarsinnar halda fram að séu í boði? Hver er reynslan öllum þessum árum og áratugum síðar? Hver er staða landbúnaðar á þessum svæðum? Þetta hefðu verið gögn sem hefði verið gott fyrir þjóðina að fá fram áður en hún tekur ákvörðun um hvort hún segi já eða nei.

Framsókn telur einnig að upplýsingabeiðnum minni hlutans hafi ekki verið sinnt með fullnægjandi hætti og við mótmælum því harðlega að hafa ekki fengið öll gögn upp á borð og að ekki hafi verið tekið með jákvæðum hætti við öllum beiðnum minni hlutans. Gögn bárust seint. Þó nokkur gögn bárust meira að segja eftir að málið hafði verið tekið út úr nefndinni og einnig gagnrýnum við að hluti upplýsinga, sem minni hlutinn taldi nauðsynlegt til að leggja heildstætt mat á málið, hafi ekki legið fyrir en með þeim hætti hefði verið hægt að nýta þær við efnislega umfjöllun nefndarinnar. Þau komu sem sagt eftir að við vorum búin að vera á nefndarfundum. Sérstaklega er þó óásættanlegt að í jafn stóru máli skuli þingmönnum og almenningi ekki tryggður aðgangur að öllum þeim gögnum sem máli skipta með nægum fyrirvara á gagnsæjan hátt.

Hér vil ég einnig leggja áherslu á að gagnrýni þessi beinist ekki að því að þjóðin fái aðkomu að málinu. Þvert á móti er eðlilegt að þjóðin hafi lokaorðið í jafn afdrifaríku máli. Hins vegar verður slík þjóðaratkvæðagreiðsla aðeins raunverulega lýðræðisleg ef undirbúningur er vandaður, ef gögn eru opin, ef sjónarmið eru upplýst og Alþingi fær raunhæfan tíma til að sinna eftirlits- og rannsóknarhlutverki sínu. Að mati þess sem hér stendur hefur sú krafa ekki verið uppfyllt við meðferð málsins.

Það komu upp nokkur álitaefni í vinnu nefndarinnar sem vert er að nefna. Á undanförnum árum hefur upplýsingaóreiða aukist umtalsvert. Víða um heim, einnig hér á Íslandi, hefur það færst í vöxt að vélmenni, sem eru í raun byggð á sjálfvirkum hugbúnaðarforritum, séu notuð á samfélagsmiðlum til að dreifa röngu máli, taka þátt í umræðu og hafa áhrif á hana. Jafnvel í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum bar talsvert á þessu. Í mörgum nágrannaríkjum okkar hefur því verið sett löggjöf til að takmarka óeðlileg inngrip erlendra aðila, öflugra innlendra hagsmunaaðila eða fjársterkra aðila. Það skýtur því skökku við að ríkisstjórn Íslands hafi ekki sýnt þá fyrirhyggju að koma slíkum fyrirmælum í lög fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu sem er jafn umdeild og raun ber vitni. Að mati þess sem hér stendur er það nauðsynlegt áður en til þjóðaratkvæðagreiðslunnar kemur.

Annað mikilvægt atriði er að núverandi meiri hluti nefndarinnar heldur því fram að fyrri þingsályktun sé enn í gildi og formaður utanríkismálanefndar staðfesti það hér í andsvari fyrr í dag. En þáverandi meiri hluti hér á árunum kringum 2009 setti fram í ítarlegu nefndaráliti sjónarmið um verklag og meginhagsmuni sem umsóknin átti að byggjast á, m.a. um orku- og auðlindamál, sjávarútvegsmál, landbúnaðarmál, byggðamál, umhverfismál og fleiri atriði. Í nefndaráliti meiri hlutans árið 2026 er að nokkru leyti og jafnvel í löngu máli fjallað um meginhagsmuni og samningsmarkmið en að mati þess sem hér stendur eru þar ekki sett fram sambærilega skýr, afdráttarlaus og bindandi skilyrði, eða rauð strik, fyrir framkvæmdarvaldið og gert var árið 2009. Þá liggur jafnframt fyrir að í bréfi þáverandi forsætisráðherra og utanríkisráðherra til ESB var hvorki sérstaklega minnst á þau skilyrði né vísað til ítarlegs nefndarálits meiri hlutans. Einn umsagnaraðili sem kom fyrir nefndina benti á að spurning væri hvort það bréf hefði næga stoð þar sem það vísaði ekki til þingsályktunar Alþingis. Í ofangreindu samhengi er grundvallaratriði að fyrir liggi skýr skilyrði og rauð strik fyrir fram til að styrkja samningsstöðu Íslands og tryggja íslenska hagsmuni á fjölmörgum sviðum.

Þriðja álitaefnið sem rétt er að fjalla um er hvort núverandi ríkisstjórn hafi í reynd þegar hafið viðræður við ESB. Í gögnum sem framkvæmdarvaldið hefur birt kemur fram að forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa átt fjölmarga fundi með ráðamönnum ESB allt frá því í janúar árið 2025. Einnig hafa þær ítrekað haldið því fram að við munum fá góðan samning þar sem tekið verði fullt tillit til flestra óska Íslands. Engin gögn staðfesta það hins vegar. Reynsla annarra þjóða í umsóknarferli styður heldur ekki slíkar yfirlýsingar. Spurningin sem vaknar óhjákvæmilega er því hvað búi að baki yfirlýsingum forystukvenna ríkisstjórnarinnar.

Fjórða álitaefnið lýtur að kynningu á undirbúningi og áhrifum þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Meiri hlutinn vísar til hlutlægni. Réttmætar efasemdir eru um að hún verði tryggð með fullnægjandi hætti nema óháð upplýsinganefnd hafi yfirumsjón með kynningu málsins og óháðir sérfræðingar komi að gerð kynningarefnis. Slík leið væri eðlileg í máli af þessari stærðargráðu og myndi styrkja traust til ferilsins.

Að lokum varðar fimmta álitaefnið lýðræðislegt lögmæti niðurstöðunnar. Að mati okkar í Framsókn er eðlilegt að setja skilyrði um lágmarksþátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni, t.d. að niðurstaðan teljist aðeins gild ef a.m.k. 50% kjósenda mæta á kjörstað og greiða atkvæði. Slík þátttökuviðmið eru fagleg og lýðræðisleg krafa sem tryggir að niðurstaðan hafi raunverulegt lýðræðislegt lögmæti. Það er mat 1. minni hluta, okkar í Framsókn, að Íslandi sé best borgið til lengri tíma utan ESB en með EES-samninginn. Matið byggist á fjölmörgum þáttum, svo sem fullveldi og fullri yfirstjórn yfir ríkulegum auðlindum Íslands. Slíkt forræði mun ekki nást í viðræðum við ESB í ljósi reynslu annarra þjóða, í ljósi sögunnar og þeirrar augljósu staðreyndar að stofnsáttmáli ESB byggist m.a. á sameiginlegri landbúnaðarstefnu, sameiginlegri fiskveiðistefnu, tollabandalagi, samtengdu orkusamfélagi og fjórfrelsinu sem engin þjóð fær undanþágur frá. Þessu til viðbótar stefnir ESB í aukna samþættingu þar sem einstök ríki þurfa í meira mæli en nú að sætta sig við yfirstjórn framkvæmdastjórnar ESB. Í raun stefnir Evrópusambandið í átt að auknu Evrópubandalagi þjóða, eins og skýrslur Mario Draghi frá því í september árið 2024 og Enrico Letta frá því í apríl 2024, sem unnar voru fyrir ESB, benda eindregið á að sé eina leið sambandsins til að ná fram aukinni skilvirkni, auka samkeppnishæfni og efla nýsköpun sem Evrópusambandið er langt á eftir sambærilegum þjóðum í. Í ljósi þess að það sem Ísland skortir, og við erum kannski að leita eftir, er langvarandi efnahagslegur stöðugleiki, eðlilegri húsnæðislánamarkaður og þar með lægra vaxtastig, þá eru það hlutir sem við þurfum hvort eð er að lagfæra sjálf til að standast svokölluð Maastricht-skilyrði. Það er því engin ástæða til að sækja um aðild að ESB því til lausnar. Við þurfum að gera þetta sjálf og við getum gert það sjálf.

Talsmenn ESB-aðildar halda því fram að einn kostur við aðild sé að Ísland fái sæti við borðið. Að fá sex þingmenn af tæplega 700 á Evrópuþinginu er hins vegar augljóslega ekki að fara að tryggja raunveruleg áhrif. Á sínum tíma, þegar farið var í ESB-leiðangurinn, var það sérstaklega talinn kostur að Bretland, einn mikilvægasti markaður Íslands, væri hluti af ESB. Bretland er það ekki lengur. Einnig hefur verið bent á að með Breta innanborðs hafi verið meira jafnvægi í yfirstjórn hinna stóru ríkja, sem í raun fara með valdið í Evrópusambandinu, með lýðræðishefð Breta að baki. Nú ráða Þjóðverjar og Frakkar langmestu innan ESB og hefðir þeirra og nálgun, sem eru verulega hallari undir meiri miðstýringu, eru nokkuð ólíkar verklagsreglum Breta og annarra enskumælandi þjóða. Menning Íslands er blanda af evrópskri menningu og hefðum og af hefðum enskumælandi þjóða hins vegar.

Annar kostur sem hefur verið nefndur er að samhliða aðild að ESB geti Ísland tekið upp evru. Þá er hins vegar áhugavert að Danir, Svíar, Tékkar, Pólverjar og fleiri ríki hafa ekki tekið upp evru og eru alls ekki á þeirri vegferð og áður hefur verið nefnt að Norðmenn og Svisslendingar eru ekki með evru. Með öðrum orðum er augljóst að mörg þeirra ríkja sem gengur hvað best í Evrópu, sem eru að bæta lífskjör síns fólks, eru ekki með evru. Evran er því engin töfralausn. Þá er það augljós galli að með upptöku evru missir Ísland sjálfstæða peningastefnu sem getur verið mjög bagalegt þegar yfir ganga náttúruhamfarir eða áföll af öðrum toga sem geta haft veruleg áhrif á Íslandi. Dæmi úr sögunni eru fjölmörg. Ekkert nágrannaríki Íslands hér á Norður-Atlantshafi er í ESB, hvorki Bretland, Færeyjar né Grænland. Restin af Evrópu sækir hins vegar mjög í að hafa áhrif á þessu svæði. Í því ljósi má spyrja hvers vegna staðan sé þessi og hvort farsælla væri að auka samstarf og samvinnu við þessi nágrannaríki frekar en að sækja um aðild að ESB. Að mati okkar í Framsókn er svarið við þeirri spurningu augljóslega já.

Aðildarsinnar tala einnig um kosti þess að tengjast betur ESB í öryggis- og varnarmálum. Að mati okkar í Framsókn er staðreyndin sú að aðild Íslands að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin tryggi varnir og öryggi Íslands nú rétt eins og undanfarna áratugi. Að auki hefur Ísland aukið samstarf sitt á þessu sviði við önnur norræn ríki, Eystrasaltsríkin, Bretland og fleiri nágrannalönd, eins og skýrt kemur fram í skýrslu þverpólitískrar þingmannanefndar hér á síðustu misserum og í þeirri þingsályktun sem fylgdi í kjölfarið. Pólitískt samstarf við sem flest ríki hlýtur að vera jákvæðara en að festa Ísland í öryggis- og varnarmálasamstarfi ESB, sem sjálft treystir á NATO og kom mjög skýrt fram í þeirri vinnu sem þingmannanefndin þverpólitíska var að vinna.

Málatilbúnaður ríkisstjórnarinnar er illa reifaður. Málið fór ekki í samráðsgátt. Ríkisstjórnin hefur verið gerð afturreka með upphaflega spurningu sína sem hún hugðist leggja fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst: Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Ríkisstjórnin hafði ekki fyrir því að óska eftir ráðgjöf eða umsögn frá landskjörstjórn, sem þó er skylt í undirbúningi málsins, hvað þá að óska eftir umsögn frá svokallaðri Feneyjanefnd, sem fjallar gjarnan um þjóðaratkvæðagreiðslur og stjórnarskrár. Báðir þessir aðilar gagnrýndu orðalagið, jafnvel harðlega, töldu það gildishlaðið, villandi og alls ekki í samræmi við góða stjórnsýslu. Utanríkismálanefnd óskaði eftir því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis tæki málið til efnislegrar umfjöllunar. Niðurstaðan er tillaga meiri hluta þeirrar nefndar að breyttu orðalagi, sem er augljóslega betra og skýrara: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Að mati okkar í Framsókn hefði spurningin: Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið?, sem minni hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar lagði til, verið enn betri og skýrari, enda er verið að spyrja þjóðina hvort hún vilji að Ísland gangi inn í ferli sem getur leitt til aðildar að ESB. Við erum aðilar að breytingartillögu ásamt öðrum í minni hlutanum að slíkri spurningu.

Það er óumdeilt að ef til samnings kemur verður að halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um hugsanlegan samning enda er ekki hægt að taka svo afdrifaríka ákvörðun án aðkomu þjóðarinnar. Við í Framsókn ítrekum að við erum ekki á móti því að þjóðin hafi lokaorðið um viðræður við ESB. Gagnrýnin lýtur að því að undirbúningurinn er ekki fullnægjandi og gögnin eru ekki opin með þeim hætti sem nauðsynlegt er og þjóðin fær ekki þann tíma eða það upplýsingaflæði sem þarf í svo stóru máli. Við blasir að ríkisstjórnin hafi kastað til höndunum við undirbúning málsins. Það má hugsa sér að í byrjun mars 2026, þegar enn ein verðbólgumælingin var yfir 5%, hafi ríkisstjórnin fengið smá áfall og það hafi því legið verulega á að koma einhverju öðru í umræðuna en vangetu ríkisstjórnarinnar til að fást við stjórn efnahagsmála. Og enn eru stýrivextir hækkaðir, síðast í dag, og verðbólgan er enn yfir 5%. Og það sem er verra, atvinnuleysi vex. En þetta tókst hjá ríkisstjórninni. Allar næstu vikur á eftir þessum blaðamannafundi snerist umræðan um ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar. Um er að ræða mjög umdeilt mál sem klýfur þjóðina í tvær fylkingar. Ófaglegheitin við undirbúninginn ýttu undir þá umræðu, menn gátu auðvitað rifist endalaust um hlutina út frá því að þetta var ekki nægilega vel undirbúið. Tímasetningin er ófagleg. Það að leggja til þjóðaratkvæðagreiðslu í lok sumars gerir undirbúninginn enn ófaglegri. Þessi þrönga tímalína hefur leitt til þess að nauðsynleg nefndarvinna hefur verið háð verulegum annmörkum. Eins og ég nefndi áður þá fengu sumir gestir 15 mínútur hver til að fara yfir sitt mál og svara spurningum, sumir reyndar allt niður í tíu mínútur. Þá hefur meiri hluti nefndarinnar hafnað upplýsingabeiðni minni hlutans til að standast þrönga tímalínu framkvæmdarvaldsins. Upplýsingar bárust síðustu sólarhringana og jafnvel eftir að meiri hlutinn hafði tekið málið út úr nefndinni eins og hér hefur komið fram.

Það er einnig augljóst að þjóðaratkvæðagreiðsla í lok sumars, að loknum sumarleyfum, gerir það að verkum að eðlileg almenn umræða verður ekki nægilega upplýsandi eða víðtæk. Það hefði þurft mun vandaðri undirbúning og upplýstari samfélagsumræðu áður en þjóðinni væri vísað í svo afdrifaríka vegferð. Að mati okkar í Framsókn hefði verið skynsamlegra að gefa utanríkismálanefnd meiri tíma til að safna upplýsingum og koma þeim upplýsingum til þjóðarinnar, það er verkefni okkar í nefndinni, og gera þá kröfu til framkvæmdarvaldsins að það veitti betri og meiri upplýsingar. Til að mynda er algerlega óboðlegt að bjóða einstökum þingmönnum í utanríkismálanefnd að skoða gögn í lokuðu rými sem hvorki má tala um, vitna í né birta. Einstakir þingmenn, eins og sá sem hér stendur, munu hafa eitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu eins og allur almenningur og í raun er verið að meina almenningi um aðgang að gögnum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er ólýðræðislegt og það er óboðleg framkoma af hálfu framkvæmdarvaldsins, ríkisstjórnarinnar og meiri hlutans á Alþingi.

Undirbúningur málsins af hálfu framkvæmdarvaldsins var ekki nægilega góður. Alþingi var sett í mjög þrönga stöðu. Tímalínan er of kröpp. Meiri hlutinn hefur ekki reynt að vinna sambærilega vinnu við að setja fram skilyrði eða rauð strik sem framkvæmdarvaldið þyrfti að halda sig við ef til viðræðna við ESB kæmi. Að mati okkar í Framsókn eru það óásættanleg vinnubrögð. Ef til viðræðna kæmi eru sjávarútvegur, orkumál og landbúnaður meðal þeirra sviða þar sem litlar sem engar málamiðlanir eða eftirgjöf gengju. Í þessum málaflokkum verður að liggja fyrir fyrir fram hver rauðu strikin eru og að þau séu bindandi leiðarljós í allri meðferð málsins, eða eins og formaður utanríkismálanefndar hefur sagt að þingsályktunin, sem var með rauðum strikum og skilyrðum, hafi verið Biblía þeirra sem voru þá að semja. Það vantar í meirihlutaálit núverandi utanríkismálanefndar. Ég var búinn að minnast á það hér að það væri eðlilegt að miðað væri við að það væri að lágmarki 50% þátttaka til að eitthvert mark yrði tekið á þessu.

Öll þessi vegferð, sem ég hef verið að lýsa, sem er því miður ekki nægilega fagleg og ekki nógu gagnsæ, er á ábyrgð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og meiri hlutans hér á Alþingi. Sterkustu rökin fyrir því að Ísland standi utan Evrópusambandsins lúta að auðlindaforræði og stjórnarfarinu sjálfu. Ísland hefur þegar víðtækan aðgang að innri markaði Evrópu í gegnum EES en sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB stendur utan EES og það sama gildir um landbúnaðinn.

Orkukerfið byggist jafnframt á nær algerlega endurnýjanlegri raforku og ferðaþjónustan sjálf skilaði um 640 milljörðum í tekjur af erlendum ferðamönnum á síðustu 12 mánuðum. Þetta eru allt stoðir sem reiða sig á staðbundnar, takmarkaðar auðlindir sem krefjast þess að forræði yfir stjórn þessara auðlinda sé á Íslandi en ekki hjá yfirþjóðlegri stofnun þar sem áhrif Íslands eru takmörkuð, sex þingmenn af tæplega 700. Meginástæða þess að þjóðartekjur á mann eru með þeim hæstu í heimi er sú að það er sjálfbær og skynsamleg auðlindanýting hér á Íslandi. Því verður að taka ákvarðanir sem tengjast auðlindum hér heima, af íslenskum fulltrúum, kosnum af almenningi á Íslandi. Hugmyndinni um varanlegt forræði þjóða yfir náttúruauðlindum á sér skýra stoð í alþjóðarétti og rannsóknir á smáum eyja- og jaðarsamfélögum benda til þess að staðbundin stjórnun, þátttaka og ábyrgð bæti bæði skilvirkni og lögmæti stefnumótunar í auðlindamálum. Að mati þess sem hér stendur væri nær að efla samstarf enn frekar við öll hin ríkin á Norðurlöndum og halda áfram að fjölga fríverslunarsamningum við þjóðir heims, ekki síst í þeim heimshlutum þar sem efnahagur vex hratt.

Í því samhengi leggur 1. minni hluti, þ.e. við í Framsókn, til að ríkisstjórn Íslands hafi frumkvæði að samtali við Færeyjar og Grænland um þríhliða fríverslunarsamning og stofnun eins konar efnahagssvæðis Norður-Atlantshafsins. Miðað við ásókn annarra ríkja, ekki síst frá ESB en einnig frá Bandaríkjunum og einnig frá öflugum ríkjum Asíu, ætti að vera raunhæft að fá fram fríverslunarsamninga við slík ríki, til að mynda Bandaríkin. Sú fjárfesting í tíma og mannafla sem aðildarviðræður við ESB krefjast, auk um 2 milljarða kostnaðar, nýtist mun betur í að byggja upp raunverulegt Norður-Atlantshafssamstarf með Færeyjum og Grænlandi. Um er að ræða þrjár nágrannaþjóðir með hliðstæðar auðlindir, sameiginlega hagsmuni og staðsetningu á sama eftirsótta hafsvæðinu. Saman gætu þessar þrjár þjóðir, þessi þrjú lönd, mótað eitt öflugasta auðlindasvæði í heimi á eigin forsendum og án þess að fórna fullveldi á nokkurn hátt. Slík vegferð myndi halda áfram að byggja undir öflug og vaxandi lífskjör á Íslandi um leið og hún tryggði yfirráð okkar sjálfra yfir auðlindum svæðisins.

Þetta nefndarálit hefði getað verið mörgum sinnum lengra og ég hefði getað haldið miklu lengri ræðu. En okkar tíma voru settar þær skorður að málið var tekið út á mánudegi og er komið hingað með afbrigðum til umræðu á miðvikudegi. Þess vegna ætla ég að ljúka máli mínu hér og nú. Ég skrifa undir þetta: Sigurður Ingi Jóhannsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í utanríkismálanefnd.