þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka fína fyrirspurn. Nú er það svo að fjarskiptamálin voru ekki á könnu innviðaráðherra á kjörtímabilinu 2021–2024. Ég var hins vegar innviðaráðherra á tímabilinu 2017–2021 með fjarskiptamálin á minni könnu og ég held að við höfum lyft grettistaki, m.a. í innleiðingu á ýmsum af þeim málum sem lutu að því. Ástæðan var sú að við vorum aftarlega á merinni í þessum málum á Íslandi. En það er fleira sem við þurfum að gera og ég ætla að benda hv. þingmanni meiri hlutans, Dagbjörtu Hákonardóttur, á verkefni sem ríkisstjórnin hefur ekki komið í verk á öllum þeim tíma sem hér hefur verið þó að slíkt frumvarp hafi legið fyrir þegar hún tók við og það er frumvarp um rýni á fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi. Þetta frumvarp lá fyrir þegar ríkisstjórnin tók við, hafði þá meira að segja verið lagt fram á Alþingi í eitt eða tvö skipti, en ríkisstjórnin hefur ekki enn klárað það mál. Ég skil það eiginlega ekki. Ríkisstjórnin hefði að sjálfsögðu, þegar hún fór í þessa miklu vegferð í að setja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um jafn umdeilt mál, með hagsmunaaðila undir sem heitir Evrópusambandið, átt að vera búin að setja löggjöf sem tryggði að erlendir aðilar hefðu ekki með jafn auðveldum hætti átt möguleika á að hafa hér áhrif. Ég vil halda því fram að hér séum við, af því að hv. þingmaður spyr hvort við myndum búa við eitthvað lakara ástand — það er algerlega í höndum ríkisstjórnarinnar og meiri hlutans, því það er það sem við þurfum að gera. Það eru nokkrir hlutir sem ríkisstjórnin þarf að sinna en hefur ekki sinnt til þessa.