157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:35]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og kasta því bara til baka að það er auðvelt að væna fyrri ríkisstjórn um aðgerðaleysi, alveg eins og það er mjög auðvelt að væna þessa ríkisstjórn um aðgerðaleysi þegar við vitum það, og það sem máli skiptir hér, að EES-samningurinn tryggir okkur ekki sömu réttindi, þ.e. að þau öðlist gildi á sama tíma, með sama hætti og með sama afli og það gerir innan Evrópusambandsins. Það eru kostir og gallar við báðar aðferðir. En staðan er hins vegar sú að það þarf að fara margar fjallabaksleiðir til að sækja sömu réttindi og ESB-borgarar búa við þegar maður er EES-borgari. Þetta eigum við að ræða.

Hv. þingmaður kom hér inn á leyndarhyggju sem ríki í utanríkismálanefnd varðandi aðgang að gögnum sem bundin eru trúnaði frá utanríkisráðuneytinu og varða samskipti við önnur ríki. Getur hv. þingmaður útskýrt fyrir þeirri sem hér stendur hvers vegna það sé, svo ég vitni í hans orð, óboðlegt að bjóða upp á skoðun gagna með þessum hætti? Ég á mjög erfitt með að ná utan um það hvaða leyndarhyggju meiri hlutinn stendur fyrir í þessu tiltekna máli varðandi þessi gögn.