157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:37]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hélt að ég hefði útskýrt það nægilega vel í framsögu minni en það liggur í augum uppi. Það er bara ágætt að fá tækifæri til að fara aðeins yfir það. Við þingmenn, þegar kemur að þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, höfum eitt atkvæði. Verkefni okkar sem erum í utanríkismálanefnd, og reyndar þingsins í heild sinni, er að safna upplýsingum og leggja á borð fyrir almenning sem þarf að kynna sér þau gögn áður en hann, allir Íslendingar með kosningarrétt, getur farið og greitt atkvæði. Það að heimila einhverjum níu aðilum að fara inn í lokað herbergi og sjá einhver gögn sem enginn annar má sjá og við megum ekki tala um, ekki vitna til og ekki birta — það hjálpar þjóðaratkvæðagreiðslunni fyrir almenning ekki neitt að ég sitji með einhverjar upplýsingar sem ég má tala um, ekki vitna í og ekki birta. Þess vegna hafnaði ég því að fá þennan aðgang alveg eins og ég hafnaði því á tímum Icesave að fara (Forseti hringir.) og fletta í möppunni frægu sem var með öllum leyniupplýsingum. Þá vorum við að berjast fyrir réttindum Íslands, landsmanna, og almenningur endaði þetta með þjóðaratkvæðagreiðslu og ég hafði engan áhuga á að vera með einhverjar leyniupplýsingar sem ég mátti ekki tala um.