þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Mig langar kannski að einbeita mér að þeim atriðum sem snúa að þjóðaratkvæðagreiðslunni sjálfri, framkvæmd hennar og spurningunni. Hv. þingmaður segir í ræðu sinni að Feneyjanefndin, og reyndar landskjörstjórn líka, hafi talið að spurningin sem upprunalega var lögð fram hafi verið gildishlaðin og villandi. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvar í hinu þýdda áliti Feneyjanefndar, sem liggur nú fyrir á vef Alþingis, orðalagið gildishlaðið og villandi er að finna. Það er mín fyrsta spurning.
Í öðru lagi: Hv. þingmaður nefnir það sem galla á þessari tillögu að það sé ekki gerð krafa um 50% þátttöku til þess að kosningin sé gild. Nú er bara um að ræða ráðgefandi atkvæðagreiðslu þannig að það væri kannski dálítið skrýtið að ógilda niðurstöðu hennar ef þátttakan færi ekki upp fyrir eitthvað ákveðið en þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann þekki tilmæli Evrópuráðsins sem Feneyjanefndin fer eftir frá árinu 2020 þar sem fjallað er um lið 7.a.i. þar sem sérstaklega er mælt gegn því að það séu settir þátttökuþröskuldar og samþykkisþröskuldar í þjóðaratkvæðagreiðslum sem þessum. Þá finnst mér dálítið skrýtið að þingmaðurinn mæli hér fyrir viðbót sem fer gegn evrópskum viðmiðum.
Í þriðja lagi kannski varðandi spurninguna sjálfa, vegna þess að á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar kom sérfræðingur, Arnar Þór Stefánsson, að beiðni minni hlutans eftir því sem ég best veit, og það er sá sérfræðingur sem hefur í opinberu máli á síðu sinni sagt að hann hafi lagt upp spurninguna að hefja að nýju, þannig að ég velti því fyrir mér hvort hérna sé ekki bara ákveðinn biðleikur eða tafaleikur, það er beðið um eitthvert álit og svo þegar álitið kemur og spurningin er með þessum hætti þá er lagt til að spurningin sé einhvern veginn allt önnur. Ef meiri hlutinn hefði lagt til spurninguna „á að ganga til viðræðna?“, hefði minni hlutinn þá ekki bara lagt til hina útgáfuna, bara til að þurfa ekki að vera saman á einu áliti?