þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég held að ég hafi sagt, og ef ég hef ekki sagt það þá er bara gott tækifæri til að svara því, að spurningin sem meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, væntanlega að tillögu þess sem kom fyrir nefndina og meiri hluti utanríkismálanefndar hefur gert að sinni, er miklu betri en sú tillaga sem framkvæmdarvaldið kom með. Aukinheldur var það hluti af þeirri frásögn og þeirri spurningu framkvæmdarvaldsins að búa til einhverja frásögn um að umsóknin væri gild og þess vegna væri þetta að halda áfram. Með þessari spurningu er verið að spyrja hvort menn vilji sækja um að nýju. Hún er miklu betri. Það sem ég var að rökstyðja í mínu máli var: Hver er staða Íslands í dag og þeirra þjóða sem við berum okkur saman við og af hverju ættum við að sækja um aðild að Evrópusambandinu? Þess vegna fyndist mér það eðlilegri spurning. En spurningin sem meiri hlutinn ætlar að halda sig við er miklu betri en sú spurning sem framkvæmdarvaldið kom með. Ég er algjörlega sammála því.
Varðandi spurninguna um prósentuna, og tilgreinda A77 eitthvað A, þá bara játar þingmaðurinn að hann þekkir ekki þessa tilvitnun hv. þingmanns. Ég held að það hefði verið ágætt ef við hefðum haft tækifæri til þess í nefndinni, ég man eftir einum umsagnaraðila sem kom og ræddi það hvort það væri eðlilegt að setja einhver mörk, en við höfðum aldrei tækifæri til þess í nefndinni að ræða það jafnvel þótt þau væru ekki nema pólitísk. Samkvæmt skoðanakönnunum getur þetta farið 51–49 í sitt hvora áttina. Það klýfur þjóðina augljóslega í tvær fylkingar og þá er spurningin: Er hægt á grunni mjög lítils hóps — ef það tækju nú bara innan við 50% þátt og 50% segðu já, ef það eru 25% þjóðarinnar sem segja: Já, við erum tilbúin til að fara í þetta afdrifaríka ferli, er þá pólitískt hægt að gera slíkt? Þá umræðu hefði verið gott að taka.