þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Hér kristallast nú kannski bara munurinn á annars vegar aðildarsinnanum — sem vill ganga í Evrópusambandið og hefur alla tíð viljað og er jafnvel kannski tilbúinn til að gefa meiri afslátt af alls konar hlutum heldur en ekki, þótt ég ætli ekki að gera honum upp þær skoðanir — og þeim sem hér stendur og greiddi atkvæði t.d. gegn þessari vegferð 2009. Það var satt best að segja ekki mikill meiri hluti í þinginu fyrir því þá. Þjóðin var aldrei spurð.
En hvort vinna nefndarinnar hafi af þeim ástæðum verið skýrari — mér fannst t.d. og hefði verið áhugavert að fá fyrrum ráðherrana Ögmund Jónasson og Jón Bjarnason, sem komu fyrir nefndina í korter hvor, til að skýra enn frekar það sem þeir voru að vísa til. Mér fannst þeir segja að ástæðan fyrir því að það var meiri hluti í þinginu á þessum tíma hafi verið sú að skilyrðin voru nægjanlega skýr, rauðu strikin voru nægjanlega skýr. Mér finnst, með fullri virðingu fyrir vinnu meiri hlutans, þau ekki vera með jafn skýrum hætti. Hvort ég hafi oftúlkað eða lesið á milli línanna — þetta var mjög kurteist fólk frá Feneyjanefndinni og vildi ekki styggja nokkurn mann, ég hef hitt sambærilegt fólk áður í vinnu við stjórnarskrána — það getur vel verið. En að gagnrýnin hafi verið harðleg og þetta sé villandi held ég að hafi komið fram hjá landskjörstjórn.