157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:46]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða framsöguræðu. Ég tek eftir því í álitinu og heyrði í málflutningi hv. þingmanns að hann leggur mikla áherslu á að svokallaðar rauðar línur verði dregnar utan um hagsmuni Íslands í þessu ferli. Þó að þetta komi sumpart fram í álitinu þá áttum við okkur stundum ekki alveg á því að það er fólk að fylgjast með sem kannski er ekki alveg eins vel innviklað í hlutina og við og bara svo það komi alveg skýrt fram í þessari umræðu þá langaði mig til að heyra sjónarmið hv. þingmanns til þess hvort slíkar rauðar línur séu dregnar í áliti meiri hlutans í þessu máli. Ef hv. þingmaður telur að svo sé ekki þá spyr ég hvort hv. þingmaður telji að það sé hægt að bæta úr því hér á þinginu.