157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:47]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nefndarálit meiri hlutans er alveg nægjanlega umfangsmikið. Það er satt best að segja mjög þykkt. Ég hef heyrt í fólki sem þó þekkir þessi mál og það er rétt hjá hv. þingmanni að okkar verkefni er að tala með þeim hætti að við séum að upplýsa almenning af því að það er almenningur sem fer í þessa atkvæðagreiðslu og við erum bara hluti af almenningi þá, það erum ekki við sem tökum þessa ákvörðun. Við þurfum að vera með mjög skýra frásögn. Þeim tveimur aðilum sem ég talaði við fannst meirihlutaálitið vera ruglingslegt og þeim fannst augljós munur á framsetningu hvað varðaði skilyrði eða rauð strik í þessu nefndaráliti, borið saman við nefndarálitið 2009, enda held ég að það hafi verið forsenda þess að þá hafi fengist eins lítill meiri hluti og raun bar vitni. Ég held að 32 eða 33 þingmenn hafi greitt því atkvæði á þeim tíma. Það hafi verið forsendan fyrir því að menn greiddu atkvæði með að þessi skilyrði væru jafn skýrt orðuð og raun bar vitni. Fyrrverandi ráðherrar Jón Bjarnason og Ögmundur Jónasson staðfestu það nú eiginlega við okkur fyrir nefndinni og það hefði verið áhugavert að ræða aðeins frekar við þá.

Er hægt að bæta það í meðförum þingsins? Ja, það var hægt en við erum stödd í síðari umræðu og þar sem þingsályktunartillögur fara bara í tvær umræður ólíkt frumvörpum þá er, þegar þessari umræðu lýkur, gengið til atkvæða um hvort þessi þjóðaratkvæðagreiðsla verður. Þessi vinnubrögð, að það skorti rauðu strikin að mínu mati, það séu ekki undirstrikuð og sett fram skýrari skilyrði, að þau séu orðuð með jafn almennum hætti og gert er — þetta er allt saman og þessi vegferð á ábyrgð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og meiri hlutans hér á þingi.