þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og tek undir með honum að það er ruglingslegt að lesa sig í gegnum meirihlutaálitið og reyna að átta sig á því. Það er augljós munur á álitinu frá 2009 og álitinu núna í þessum efnum og ég fer betur yfir það í ræðu minni hér á eftir. En varðandi það að við séum komin fram yfir það að hægt sé að bæta úr þessu atriði, telur hv. þingmaður að það hafi staðið til og geta þetta verið mistök? Geta það verið mistök eða einhver misskilningur að hvorki hæstv. ráðherra né meiri hluti utanríkismálanefndar dragi slíkar rauðar línur í sandinn varðandi hagsmuni Íslands? Er ekki ólíklegt að það hefði verið úr þessu bætt þó að við hefðum e.t.v. lagst betur yfir þetta í nefndinni eins og við vonuðumst til? Nú vísa ég til orða hv. þm. Pawels Bartoszeks hér áðan örlítið fyrr í umræðunni þar sem hann lýsti því yfir að hann teldi að við ættum ekki að ganga til skilyrtra viðræðna. Er þá bara ekki ólíklegt að það sé vilji til þess að bæta úr þessu?