þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Nú spyr hv. þingmaður mig um hugsanir og ætlanir meiri hlutans og framkvæmdarvaldsins og ég get ekki svarað. Ég er hins vegar algerlega sannfærður um að sá tímarammi sem framkvæmdarvaldið setti Alþingi og meiri hlutanum í utanríkismálanefnd hafi verið of þröngur. Það er engin spurning. Þess vegna hafi verið sett upp eins stíf dagskrá og raun bar vitni og ekki vikið frá henni á nokkurn hátt sem gerði það að verkum að eftir situr að við hefðum viljað fá suma gesti aftur, frekari svör frá þeim sem skiluðu skýrslum og jafnvel fleiri gesti sem ekki fengu að koma þó að þeir hefðu bæði áhuga á því og sendu inn umsagnir, þannig að ég veit ekki svarið. Svo er auðvitað hin hliðin á málinu og ég reifaði hana aðeins í vangaveltum. Bæði hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. forsætisráðherra hafa margoft verið með yfirlýsingar um að það sé góður samningur í vændum. Þá vaknar auðvitað spurningin: Hvað vita þær sem við vitum ekki? Ef það er í leynigögnunum, sem við megum skoða en við megum ekki segja almenningi frá því, hvaða sögu er verið að búa hérna til? Eða er þetta bara allt saman einn stór blekkingaleikur í kringum það að halda því fram að það að kíkja í pakkann hafi engar afleiðingar? Það að leita eftir því hvort við fáum eitthvað sé bara svo mikilvægt að afleiðingar þess skipti engu máli? Við þekkjum það sem gerðist hér á árunum 2009–2013. Stjórnkerfið lagðist á hliðina, gat ekki sinnt öðrum verkefnum eins vel og hefði þurft, þó að margt hafi verið gert vel á þeim tíma í endurreisninni. En spurningin er þessi: Eru einhver gögn sem við vitum ekki um eða einhverjar upplýsingar? Þannig að ég get ekki svarað spurningunni, hv. þingmaður.