þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Það gengur ekki vel hjá ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Þessi stjórn var mynduð um, að sögn, markmið sem kynnt voru í kosningabaráttu við lok árs 2024 og sneru einkum að stöðu efnahagsmála á Íslandi, verðbólgu, vöxtum og atvinnulífi, a.m.k. af hálfu flokks hæstv. forsætisráðherra. Ekkert af markmiðunum hefur gengið eftir, eiginlega þvert á móti. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa verið til þess fallnar að auka á vandann, ýta undir verðbólgu og efnahagslega óreiðu á Íslandi. Þá er brugðið á það ráð að drepa málunum á dreif með því að leggja fram þingsályktunartillögu sem er til þess ætluð að valda ágreiningi um eitt umdeildasta, ja, líklega alumdeildasta mál íslenskra stjórnmála, aðild að Evrópusambandinu.
Þetta mál var reyndar rætt í kosningabaráttunni þar sem hæstv. forsætisráðherra var afdráttarlaus og rökstuddi mál sitt vel um það að þetta væri ekki tíminn til að skipta þjóðinni í fylkingar í deilum um Evrópusambandið. Fyrst þyrfti að ná árangri á þeim sviðum sem Samfylkingin sérstaklega boðaði að þyrfti að ráðast í strax að loknum kosningum; ná niður vöxtum og verðbólgu, ná tökum á efnahagsmálunum. Annar forystumaður stjórnarflokkanna, hæstv. ráðherra Inga Sæland, sagðist eindregið andsnúinn aðild og flokkur hennar lýsti því yfir að hann væri jafnframt andsnúinn því að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla um málið á kjörtímabilinu. Og loks var það Viðreisn sem reyndi eftir fremsta megni að forðast að ræða málið fyrir kosningar.
En þegar ríkisstjórnin var komin í öngstræti var gripið til þessa ráðs, að stefna samfélaginu í deilur um aðild að Evrópusambandinu, á sérstaklega undarlegum tímapunkti þegar Evrópusambandið er í miklum þrengingum og hefur á allan hátt, nánast á allan hátt hið minnsta, gengið mun verr en Íslandi. Þrátt fyrir ríkisstjórnir hér sem hafa verið misgóðar, skulum við segja, þá hefur fullveldi Íslands og geta okkar til að ráða málum okkar sjálf, taka ákvarðanir sem henta okkar aðstæðum, engu að síður tryggt það að um langt skeið hefur orðið mun meiri framþróun á allflestum sviðum á Íslandi en í Evrópusambandinu. Evrópusambandið er í viðvarandi krísu, fer úr einni krísunni í aðra og er í raun orðið að samdráttarbandalagi og finnur enga leið út. Það er reyndar byrjað að fikra sig áfram með að viðurkenna vandann eins og birtist m.a. í hinni svokölluðu Draghi-skýrslu þar sem einn af helstu talsmönnum aukins Evrópusamruna, fyrrnefndur Mario Draghi, lýsir því afdráttarlaust að Evrópusambandið þurfi að taka sér tak, þetta sé ekki að ganga. Það vill hann leysa með auknu samrunaferli og enn er allt á huldu um hvert það mun leiða Evrópusambandið. En allar þær aðgerðir sem Evrópusambandið hefur gripið til fram að þessu hin síðari ár hafa annaðhvort verið til þess fallnar að auka á vandann eða ekki leyst hann.
Það er þess vegna afskaplega sérkennilegt að við sitjum hér uppi með ríkisstjórn sem lét kjósa sig út á það að ætla að taka á málum hér heima og leysa þau á okkar forsendum en verður ekkert ágengt og ákveður að forða sér í deilur um Evrópusambandið og gera það á þessum tímapunkti.
Víkur þá sögunni, herra forseti, að nefndaráliti 2. minni hluta utanríkismálanefndar. Þar er forsaga málsins rakin að nokkru, sú saga sem ég nefndi hér áðan um myndun ríkisstjórnarinnar og afstöðu flokkanna fyrir stjórnarmyndun, en einnig að í stjórnarsáttmála hafi komið fram að til stæði að ráðast í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi — eða nýjar, hvernig sem menn vilja túlka það sem hér er fram komið því það er enn ekki ljóst — aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta skyldi gerast eigi síðar en árið 2027. Umræðan allt frá því að stjórnarsáttmálinn var kynntur gerði ráð fyrir því að atkvæðagreiðslan færi fram 2027. Þannig töluðu ráðherrar og töluðu þannig alveg fram í febrúar síðastliðinn. En í þeim mánuði, febrúar á þessu ári, fóru að berast fréttir frá útlöndum þar sem erlendir fjölmiðlar höfðu eftir heimildarmönnum sínum í Brussel að Ísland væri á leið í Evrópusambandið eða, í sumum tilvikum, að Ísland væri að fara í hraðferð í Evrópusambandið og hygðist þess vegna ráðast í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrr en síðar. Dagsetningin kom meira að segja fram, ágúst á þessu ári. Skömmu síðar tóku að birtast fréttir á samfélagsmiðlum hinna ýmsu samtaka sem tala máli Evrópusambandsins, sum þeirra studd dyggilega af Evrópusambandinu sjálfu til að tala máli þess, og þær voru sama efnis; að Ísland væri á leið í ESB.
Það fyrsta sem íslenskur almenningur og við alþingismenn heyrðum af þessu frá ríkisstjórninni var hins vegar ekki fyrr en að skyndilega og óvænt var boðað til blaðamannafundar hinn 6. mars. Þar var í raun fréttaflutningurinn hinna erlendu miðla staðfestur. Það var staðfest að ríkisstjórnin ætlaði að vinda sér í þetta mál og flýta ferlinu sem mest mætti vera. Og svo mikið lá á að málið skyldi ekki kynnt í samráðsgátt stjórnvalda, ekki fylgt reglum um að kynna mál í samráðsgáttinni og raunar var málið ekki einu sinni kynnt fyrir utanríkismálanefnd Alþingis og, eins og ég nefndi áðan, ekki heldur fyrir þingmönnum minni hlutans eða meiri hlutans að öðru leyti en því að hugsanlega kunna einhverjir að hafa fengið upplýsingar um þetta svo lítið bæri á.
Hvers vegna þessi flýtir? Ja, hver sem ástæðan er þá átti þetta eftir að gefa tóninn um hvernig á þessu máli yrði haldið í framhaldinu því að þetta mál hefur verið rekið áfram af mikilli hörku, held ég að sé óhætt segja. Og ólíkt því sem fullyrt var á blaðamannafundinum og í viðtölum við ráðherra í framhaldi af honum hefur það ekki snúist um að veita almenningi völd yfir stöðunni, a.m.k. ekki að veita almenningi upplýsingar. Þetta mál ber allt merki þess að því skuli flýtt sem mest og tryggt að umræðan um það verði sem minnst. væntanlega í því augnamiði að fá almenning til að taka afstöðu til þess á grundvelli einhvers annars en innihaldsins, á grundvelli yfirbragðs, ímyndar. Enda heyrum við hæstv. ráðherra enn tala um að þetta snúist bara um að leyfa þjóðinni að ráða, leyfa þjóðinni að velja. En velja um hvað? Ekki hafa enn fengist svör við því.
Það var mælt fyrir málinu á næsta þingfundi eftir blaðamannafundinn og þá vel að merkja hafði enn ekki gefist tími til að kynna málið fyrir utanríkismálanefnd og umræður voru rétt að hefjast þegar hv. þingmenn stjórnarliðsins voru farnir að saka stjórnarandstöðuþingmenn um málþóf. Hæstv. ráðherrar höfðu þegar á blaðamannafundinum sent viðvörunarskot til hv. þingmanna um að það væri nú eins gott að tala ekki of mikið um þetta mál.
Áður en að þessu kom hafði verið endurvakinn ágreiningur um stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu, ágreiningur sem var til lykta leiddur fyrir löngu síðan. Á ný fóru menn að halda því fram að Ísland væri enn þá umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu. Það virtist sama hvaða upplýsingar væru leiddar fram, jafnvel og ekki hvað síst upplýsingar frá Evrópusambandinu sjálfu. Menn ákváðu einfaldlega að líta fram hjá því, væntanlega vegna þess að þeir töldu að ef það ætti að takast að véla Ísland inn í Evrópusambandið þá þyrfti að stytta ferlið sem allra mest og þá væri heppilegt að líta svo á að Ísland væri umsóknarríki.
Þó kom sá tími að ekki var lengur hægt að halda því fram að Ísland væri umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu. Evrópusambandið sjálft hefur staðfest það og fyrir lá að viðræðum hefði verið hætt. Þetta virtist hafa gleymst á tímabili. Viðræðum hefði verið hætt í kringum áramótin 2012/2013 og þeim svo slitið 2015 af nýrri ríkisstjórn. Það var gert með bréfi sem dagsett var 12. mars 2015. Þá þegar eða skömmu síðar, eftir mikla reiðiöldu yfir því að viðræðum hefði verið slitið formlega, var byrjað að leita leiða til að halda því fram að umsóknin væri enn á lífi. Afleiðingin af því var sú að sá sem hér stendur hélt til Brussel og hitti þar forystumenn Evrópusambandsins, þeirra á meðal Jean-Claude Juncker og Donald Tusk, og afhenti þeim bréf til að gera þeim ljóst hver staðan væri, að Ísland hefði dregið umsóknina til baka og væri ekki lengur umsóknarríki. Þeir féllust á þetta og þetta kom fram í fjölmiðlum á sínum tíma og Jean-Claude Juncker, viðkunnanlegur maður á þessum fundum, útskýrði að stundum tæki það tíma að að koma málum í gegn hjá Evrópusambandinu og uppfæra heimasíður og slíkt en menn væru meðvitaðir um stöðuna.
Liðu þá nokkur ár án þess að nokkrum dytti í hug að halda því fram að umsóknin væri enn þá í gangi, þ.e. að Ísland væri umsóknarríki þangað til núna í aðdraganda þessa máls sem endaði svo með því, eins og ég sagði, að menn gáfust upp á slíkum fullyrðingum en fundu í staðinn nýtt orð til að styðjast við um umsóknarferli Íslands. Það er á ensku, herra forseti, orðið „valid“, að umsóknin væri gjaldgeng eða gild. Þetta kom fyrst fram af hálfu talsmanns stækkunarstjóra Evrópusambandsins en sá maður heitir Guillaume … (Gripið fram í.) — Hér er gott að hafa Evrópuþingmann til að útskýra fyrir mönnum hvernig eigi að bera fram þetta nafn. En ég mun hins vegar hér eftir eingöngu vísa til hans eftir eftirnafninu sem er, eftir því sem ég kemst næst, Mercier. Mercier þessi, talsmaður stækkunarstjóra, fór í viðtal við Ríkisútvarpið í janúar 2025 og kynnti til sögunnar þessa nýju skilgreiningu á umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og hún væri gild eða gjaldgeng. Hann lét reyndar fylgja sögunni að ef Ísland vildi aftur senda inn umsókn þá gæti þurft að fá samþykki allra aðildarríkjanna fyrir því og framkvæmdastjórnarinnar sem myndi ráða því hvernig tekið yrði í slíkt. En hvað um það. Þarna var gjaldgengið komið til sögunnar.
Það er ekkert skrýtið að Evrópusambandið gæti viljað líta svo á að umsóknin eins og hún stóð sé enn þá gild. Hvers vegna ekki? Hvers vegna ætti Evrópusambandið ekki að vilja byrja þar sem frá var horfið, byrja á þeim stað þar sem Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir skildu við umsóknina? Það myndi einfalda málið. Það myndi líka þýða að Ísland væri búið að fallast á frá byrjun kröfur og skilyrði Evrópusambandsins fyrir aðildarviðræðum, en ég kem nánar inn á það á eftir.
En þótt afstaða Evrópusambandsins eða talsmanna þess sé skiljanleg, hvers vegna ættu íslensk stjórnvöld, ríkisstjórn Íslands, að vilja byrja áfram eða halda áfram með umsókn Jóhönnu Sigurðardóttur og Össurar Skarphéðinssonar? Sérstaklega í ljósi þess að nú er málið kynnt til sögunnar á þann hátt að við Íslendingar séum í allt annarri og sterkari samningsstöðu en áður. Áður höfum við verið nýkomin úr bankahruni og miklum efnahagslegum hremmingum en nú séum við í sterkari stöðu þótt auðvitað fjari undan því, herra forseti, vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar. En vegna sterkari stöðu okkar nú sé samningsstaða okkar sterkari. Af hverju ættu þau þá að vilja byrja þar sem frá var horfið og fallast á öll skilyrðin sem Evrópusambandið hafði sett fyrir viðræðunum? Maður getur vart ályktað annað en að það sé vegna þess að það liggi mikið á og þetta snúist í raun fyrst og fremst um að hæstv. utanríkisráðherra fái umboð til þess að fara fram að vild í viðræðum við Evrópusambandið.
Sérkennilegast af öllu var þó að málið skyldi aftur kynnt á sömu forsendum og árið 2009 þegar við vorum í fyrrnefndum hremmingum, þ.e. að í rauninni snerist þetta ekkert um hvort menn vildu ganga í Evrópusambandið. Þetta snerist um það hvort við vildum sjá hvað væri í boði, gefa Evrópusambandinu tækifæri til að gera okkur tilboð, kíkja í pakkann eins og það er einnig kallað. Þetta er algerlega séríslensk nálgun á Evrópusambandið. Ekkert annað land, engin önnur stjórnvöld í nokkru öðru landi, Austur-Evrópu Vestur-Evrópu, Norður-Evrópu eða Suður-Evrópu hafa látið sér detta í hug að hægt sé að telja þjóð sinni trú um að það að sækja um aðild að Evrópusambandinu snúist ekkert endilega um að vilja ganga í Evrópusambandið, það sé bara leið til að gefa Evrópusambandinu tækifæri til að útskýra hvað felist í aðild að ESB og gera mönnum svo einhver tilboð um að ganga inn. Þetta er svo fráleitur málflutningur, herra forseti, að það tekur engu tali en sérstaklega þegar hann er endurtekinn. Það var búið að reyna þetta áður og staðreyndirnar voru komnar í ljós.
Ég fylgdist ekki bara með þessu ferli á sínum tíma. Ég var þátttakandi í því í utanríkismálanefnd og sameiginlegri þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins og á öðrum fundum sem haldnir voru, þeir voru margir, vegna umsóknar Íslands. Þegar fulltrúar Íslands, m.a. frá stjórnarmeirihlutanum á þeim tíma, reyndu að útskýra fyrir fulltrúum Evrópusambandsins að Ísland væri að sækja um aðild, ekkert endilega til að ganga inn heldur bara svona til þess að sjá hvað væri í boði, þá var mönnum hreinlega misboðið. Þeir voru undrandi og þeim var misboðið. Ýmist firrtust menn við eða vorkenndu fulltrúum Íslands og tóku til við að útskýra fyrir þeim eins og börnum út á hvað aðildarumsókn að Evrópusambandinu gengi, vísuðu jafnvel í að það lægi fyrir og hefði gert frá upphafi hvað fælist í Evrópusambandsaðild og hvernig umsóknarferlið gengi fyrir sig. Það væri m.a. til leiðarvísir frá Evrópusambandinu um hvernig umsóknarferli virki.
En engin hugmynd er svo slæm að núverandi hæstv. ríkisstjórn sé ekki tilbúin til að reyna að endurvinna hana, jafnvel þótt sannleikurinn sé með óyggjandi hætti kominn í ljós og það sjáum við nú með „kíkja-í-pakkann“- umræðunni og tilraunum til að telja fólki trú um að áform um þjóðaratkvæðagreiðslu snúist um eitthvað allt annað en hvort Ísland sækist eftir aðild að Evrópusambandinu. Það er væntanlega vegna þess að þótt hæstv. ríkisstjórn sé nú ekki með allt á hreinu þá gerir hún sér grein fyrir því að Íslendingar eru ekkert áhugasamir um að ganga inn í ESB. Þetta er leið fyrir hæstv. utanríkisráðherra og Viðreisn til að ná tökum á málinu, ná völdum. Og ekki bara að ná völdum í samskiptum við Evrópusambandið því þetta mun leggja allt samfélagið undir sig verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslunni að fara í þessar viðræður. Stjórnkerfið verður undirlagt af þessu. Hæstv. forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir verður í aukahlutverki á meðan hæstv. utanríkisráðherra ræður för og allar meginstofnarnir samfélagsins vinna að því dagana langa að aðlagast Evrópusambandinu.
Þá er komið að kafla um umsóknarferlið á sínum tíma, sem ég var aðeins að kynna til sögunnar, í samanburði við hvernig umsóknarferlið er nú. Það hefur reynst afskaplega erfitt í utanríkismálanefnd að fá upplýsingar um hvað í því felist og áheyrendur geta gefið sér hvers vegna það er. Það er vegna þess að þetta mál gengur allt út á að draga upp einhverja allt aðra mynd heldur en raunveruleikinn sýnir, eins og ég rakti hérna áðan. Fyrir vikið hefur umfjöllun í utanríkismálanefnd einkennst meira af tilraunum til að fela upplýsingar eða halda aftur af upplýsingagjöf en að leita upplýsinga og skýra málið. Engu að síður hafa birst upplýsingar á meðan starf nefndarinnar hefur farið fram. Þannig gerðist það til að mynda að í Morgunblaðinu birtust fréttir af grundvallarskjali í þeim viðræðum sem nú er leitast við að endurvekja, halda áfram, eins og það var orðað. Grundvallarskjal, segi ég, og það er ekki orðum aukið því að skjalið lýsir grundvelli viðræðnanna, forsendum og skilyrðum Evrópusambandsins fyrir aðildarviðræðunum við Ísland, alveg frá upphafi viðræðnanna, skjal sem hafði einhvern veginn horfið af sjónarsviðinu en dúkkaði loks upp.
Ég held að það sé tilefni til þess, herra forseti, að að nefna nokkur atriði þessa skjals hér í umræðu í þingsal því það fékk afskaplega takmarkaða umræðu í utanríkismálanefndinni þótt það lýsi og svari grundvallarspurningu í málinu, hvað taki við ef menn segja já við því að halda áfram viðræðum við Evrópusambandið. Í skjalinu kemur fram að hraði viðræðnanna ráðist af því hversu vel Íslandi tekst að uppfylla kröfur vegna aðildar og innleiða þær. Evrópusambandið muni meta hvenær skilyrði teljast uppfyllt. Þetta er margítrekað. Það er líka sérstaklega undirstrikað að sameiginlegt markmið aðildarviðræðnanna sé aðild. Maður hefði nú talið, herra forseti, að kannski þyrfti ekki að útlista þetta, það segði sig eiginlega sjálft, en engu að síður, til að taka af allan vafa þá gerir Evrópusambandið það og tekur fram í forsendum viðræðna við Ísland að sameiginlegt markmið viðræðna sé aðild. Svoleiðis að hér er verið að leggja til að greiði menn atkvæði með þessari tillögu, segi já í þjóðaratkvæðagreiðslu, þá séu að hefjast viðræður þar sem sameiginlegt markmið er aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Svo segir að viðræðurnar hefjist á grundvelli þess að Ísland virði og ætli að stuðla að reglum ESB og ítrekað er dregið fram með óyggjandi hætti að ESB ráði ferðinni og muni „fylgjast náið með framvindunni að því er varðar öll viðmið vegna aðildar“. Verði samningaviðræðum frestað setur sambandið einhliða kröfur um hvaða skilyrði skuli setja fyrir endurupptöku þeirra. Áhersla er lögð á mikilvægi þess að stækka stjórnkerfið svo „fyrir hendi sé geta til að gangast undir þær skuldbindingar sem fylgja aðild, þar með talið að stefna að markmiðum um pólitíska, efnahagslega og peningalega einingu“. Á meðan á ferlinu stendur þarf að sýna fram á að búið sé að byggja upp kerfi sem sé fært um að „beita og framfylgja regluverki ESB“. Þetta skal gerast meðan á ferlinu stendur. Byggja upp báknið. Ísland þarf að fallast á að gefa eftir sjálfstæða utanríkisstefnu og fylgja stefnu ESB gagnvart þriðju löndum og innan alþjóðastofnana. Aðild á að vera til þess fallin að „styrkja ferli samfelldrar þróunar og samruna sem Evrópusambandið og aðildarríki þess taka þátt í“. Svo er tekið fram að ESB muni beita sér „í því augnamiði að efla samstöðu og tryggja stuðning borgaranna“ — hér er átt við Íslendinga — „við aðildarferlið“.
Þetta er afskaplega áhugavert því á fyrrnefndum blaðamannafundi þóttust ráðherrarnir ekkert kannast við það að Evrópusambandið gæti viljað skipta sér af kosningabaráttunni en höfðu hins vegar áhyggjur af því að einhver fjarlæg lönd kynnu að gera það. Þeir sögðu þó að ef það kæmi á daginn að Evrópusambandið væri að skipta sér af þá væri það alvarlegt mál. Sjáum hvernig það fer, hvort Viðreisnarbottarnir þagni eða eflist til muna.
Herra forseti. Ítrekað er áréttað að aðild feli í sér viðurkenningu Íslands á regluverki ESB og að Ísland verði að beita því „eins og það er þegar til aðildar kemur“. Fallist skal á eftirgjöf dómsvalds til dómstóla Evrópusambandsins. Bent er á að regluverkið sé í stöðugri þróun og Ísland skuli fylgja því öllu, öllum gerðum, hvort sem þær eru bindandi eða ekki, samstarfssamningum, ályktunum, yfirlýsingum, tilmælum, leiðbeiningum o.fl. Gerð er krafa um að Ísland þjálfi nægan fjölda þýðenda til að túlka samskipti og þýða allt regluverk sambandsins áður en niðurstaða fæst um aðild. Áréttað er að Ísland verði að virða skuldbindingar „til fulls“ og segja upp öllum tvíhliða samningum og alþjóðasamningum sem Ísland hefur gert og samræmast ekki aðild. Útskýrt er afdráttarlaust að aðlögunarfrestur sé aðeins leyfður í undantekningartilvikum og „að því tilskildu að þær séu takmarkaðar í tíma og að umfangi, sem og að þeim fylgi áætlun þar sem áfangar vegna beitingar regluverksins eru skilmerkilega skilgreindir“.
Um hugsanlega tímabundna aðlögun segir svo: „Aðlögunarfyrirkomulag má aldrei fela í sér breytingar á reglum eða stefnumiðum Evrópusambandsins, trufla eðlilega starfsemi eða leiða til verulegrar röskunar á samkeppni.“ Íslandi beri að hrinda aðlögun í framkvæmd á meðan á umræðum stendur en ESB tekur þó fram að ekki sé nauðsynlegt „að fastsetja nákvæmar tæknilegar aðlaganir að regluverkinu meðan á aðildarviðræðunum stendur“. Slík atriði verði hins vegar að leysa með stofnunum ESB áður en til aðildar kemur. Nákvæm tæknileg atriði. Það er kannski hægt að bíða með þau á meðan aðildarviðræður eru í gangi en það þarf að klára þau áður en til aðildar kemur.
Herra forseti. Nú er ég rétt að komast örlítið áleiðis í því að gera grein fyrir nefndaráliti 2. minni hluta en tímans vegna verð ég að gera hlé hér. En eins og hæstv. forseti getur eflaust gefið sér þá kallar þetta á örlítið fleiri ræður.