157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:24]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir ræðu sem ég hef heyrt nokkrum sinnum áður í ólíkri mynd, ýmist varðandi bókun 35 og u.þ.b. allt sem lýtur að utanríkismálum eins og þeim er háttað í dag. Hér er horft í baksýnisspegilinn. Hér eru málaðar upp dökkar myndir af því að hér sé fyrirhugað að plata fólk, að þjóðin geti ekki lagt mat á stöðuna upp á eigin spýtur og að vegferðin eins og hún var hér 2009–2012 hafi verið mikil sneypuför fyrir Ísland og hafi ekki leitt neitt af sér annað en að þetta hafi verið gert á röngum forsendum. Við sem erum hins vegar þeirrar skoðunar að það sé núna svo komið fyrir íslenskri þjóð að okkur beri að líta fram á við þökkum fyrir þessa fallegu söguskýringu en hún á ekki við að mínu mati og það deila nokkrir þeirri skoðun með mér.

Hér í dag og bara víða í samfélaginu eru margir að reyna að stýra dagskrárvaldinu með þeim hætti að tala um leyndarhyggju, hér hafi nefndarvinnan í utanríkismálanefnd farið fram í þeim tilgangi að leyna gögnum. Ég má til með að spyrja hv. þingmann hvers vegna hann ákvað að nýta sér ekki þann rétt að kynna sér þau gögn sem afhent voru frá utanríkisráðuneytinu sem hafa að gera með samskipti við erlend ríki og m.a. samskipti sem komu þá frá fulltrúum erlendra ríkja og voru veitt Íslandi með því skilyrði að þau færu ekki til almennings. (Forseti hringir.) Hvers vegna ákvað hv. þingmaður að kynna sér ekki þessi gögn? Er hann ekki skyldugur gagnvart kjósendum þessa lands að leggja mat á þessi gögn með réttum hætti?