157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:26]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Að mestu leyti var þetta andsvar sem markaðist af hugleiðingum hv. þingmanns og jafnvel gremju yfir því að verið væri að benda á staðreyndir þessa máls og rifja upp eitthvað af fortíðinni. En í því samhengi er kannski rétt að benda hv. þingmanni á það að það er meiri hlutinn hér og ríkisstjórnin sem byggir þetta mál á fortíðinni, byggir þetta mál á þingsályktunartillögu frá 2009 sem að mati hv. meiri hluta er enn í gildi, af því hún hafi ekki verið sérstaklega afturkölluð, og ætlar að halda áfram fyrri viðræðum við Evrópusambandið, halda áfram þar sem frá var horfið. Það er tillagan. Þannig var þetta lagt fram. Því skyldum við þá ekki að velta fyrir okkur hvað í því felst? Því skyldum við ekki líta til þess um hvað þær aðildarviðræður snerust, á hverju þær byggðust? Það er dálítið sérkennilegt að koma hér og segja að við þurfum að horfa til framtíðar og ekki til baka þegar verið er að tala fyrir tillögu sem byggir á því einmitt að horfa til baka og byggir á því sem þá var gert. En hvað um það.

Hv. þingmaður spurði hvers vegna ég og eftir atvikum aðrir hv. þingmenn minni hlutans í utanríkismálanefnd hefðum kosið að skoða ekki gögnin í leyniherberginu. Svarið er einfalt. Þetta er eingöngu leið til að múlbinda menn, koma í veg fyrir að þeir geti tjáð sig um grundvallargögn málsins. Því skyldu hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar láta plata sig út í slíkt? En það má spyrja á móti: Hvers vegna má fólk ekki sjá þetta? Hv. þingmaður talaði hér um skyldur gagnvart þjóðinni. Ja, er ekki skyldan gagnvart þjóðinni sú að hún fái að vita um hvað þetta raunverulega snýst og hvað er búið að vera að bauka og bralla af hálfu hæstv. utanríkisráðherra í Brussel (Forseti hringir.) og út í hvað verður farið ef svarið verður já við þjóðaratkvæði, herra forseti? Á fólk ekki rétt á því að vita það?