þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Svo ég vitni í hans orð: Á ekki þjóðin rétt á að vita það? Maður skyldi nú aldeilis halda að þjóðin eigi rétt á að fá að vita hvað henni stendur til boða. Maður skyldi nú aldeilis halda það og þar ætla ég bara að taka undir með hv. þingmanni. Ástæðan fyrir því að hv. þingmaður fór ekki og kynnti sér þessi gögn sem hann kallaði sannarlega eftir að yrðu afhent, er einföld. Það er til að hann geti dylgjað í meirihlutaáliti sínu, hann geti dylgjað og sagt, með leyfi forseta:
„Ýmislegt vantar enn og gögn sem fjalla m.a. um samskipti íslenskra stjórnvalda við ESB vegna ESB-umsóknarinnar og þjóðaratkvæðagreiðslunnar töldust svo hættuleg …“
Hv. þingmaður veit það jafn vel og ég að þessi gögn voru ekki til kynningar fyrir utanríkismálanefnd vegna þess að þau eru ekki til. Það eru engin gögn sem varða þessa þjóðaratkvæðagreiðslu sem fyrirhuguð er vegna þess að viðræður eru ekki hafnar. (Forseti hringir.) En það er ódýrara að segjast hafa hafnað því að fara inn í herbergi og kynna sér gögnin eins og skylda hans er. (Forseti hringir.) Það er miklu skemmtilegra að dylgja. Hv. þingmaður veit þetta.