157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:30]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Andsvör hv. þingmanns verða sífellt undarlegri. Það liggur fyrir í þeim gögnum sem við þó höfum fengið að sjá hvaða fundir voru haldnir, hvaða ráðherrar tóku þátt í þeim og hvert umræðuefnið var. Og umræðuefnið sneri oft og tíðum, þótt því hafi reyndar verið haldið leyndu eða a.m.k. ekki gert mikið úr því, að aðildarferlinu, stöðu umsóknarinnar, þá væntanlega á sínum tíma, og framhaldinu. En innihaldið má ekki ræða. Eða hvers vegna má ekki birta þessi gögn? Hvers vegna segir fólk sem segir að þjóðin eigi að fá að ráða, það eigi að fá upplýsingar og það eigi að forðast upplýsingaóreiðu — hvers vegna má almenningur ekki sjá hvað búið er að gera og hvað tekur við, segi menn já í áformaðri þjóðaratkvæðagreiðslu?