157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:31]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar fyrst að segja um þessa umræðu, þá meina ég hina opinberu umræðu, að það vill oft til á samfélagsmiðlum að það kemur eitthvert fólk inn á þráðinn hjá manni og heldur fram ýmsu misfögru um mann og stundum eru þetta einstaklingar sem eru kannski ekki nógu vel upp aldir en mjög oft fólk sem er ósammála manni en er bara mjög kurteist. En einstaka sinnum hefur maður rekist á það sem ég myndi segja að væru augljósir falsreikningar sem eru bara settir fram til að koma á mann höggi. Þetta er stundum dálítið miður en aldrei hefur mér dottið í hug að saka hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson eða hans starfsfólk eða hans teymi um að standa á bak við þetta. Þess vegna verð ég að segja að mér sárnar aðeins þegar hv. þingmaður heldur því hérna ítrekað fram að ákveðnir nafnlausir reikningar á netinu hafi verið Viðreisnarbottar. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi einhverjar sönnur fyrir því eða hvort þetta séu bara svona ávirðingar sem hann er tilbúinn að slengja hérna fram til að koma höggi á andstæðinga sína. Við komum ekki nálægt þessu, svo það sé sagt.

Þá kemur að spurningunni: Hv. þingmaður kemur hér og lýsir því að þetta ferli, þessi þingsályktunartillaga, hafi byrjað með mikilli leynd, stjórnarliðar hafi ekki vitað og hvað þá minni hlutinn að það væri einhver tillaga að koma fram, utanríkismálanefnd hafi ekki einu sinni verið látin vita. Þetta minnir mig á eitt atriði í sögunni, minnir mig á bréfið sem var sent þar sem Evrópusambandinu var tilkynnt að það ætti ekki lengur að líta á okkur sem umsóknarríki. Ekki voru stjórnarliðar látnir vita og mikil leynd hvíldi yfir málinu, utanríkismálanefnd var ekki einu sinni látin vita. Ég velti því fyrir mér: Hefði ekki verið alla vega lágmark á þessum tíma að sinna formlegu samráði við utanríkismálanefnd og láta nefndina vita af því að til stæði að taka Ísland af lista yfir umsóknarríki? Er það ekki meiri háttar utanríkismál hvort Ísland sé á lista yfir umsóknarríki, sama hvað manni finnst um Evrópusambandið eða ekki? Af hverju var það ekki gert?