þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Fyrst er kannski rétt að útskýra það, þetta var alveg sanngjörn athugasemd frá hv. þingmanni, að þegar ég talaði um Viðreisnarbotta þá átti ég ekki við að þeim væri stjórnað af Viðreisn úr höfuðstöðvum flokksins eða annars staðar, en þeir eru Viðreisnarbottar í þeim skilningi að þeir eru greinilega mjög hlynntir Viðreisn og hæstv. ráðherrum flokksins, ekki hvað síst hæstv. utanríkisráðherra og atvinnuvegaráðherra, og leggja til atlögu við alla eða marga sem gagnrýna þessa hæstv. ráðherra. En þetta var sanngjörn athugasemd frá hv. þingmanni.
Hvað varðar samskipti við utanríkismálanefnd þá er þessi spurning hv. þingmanns auðvitað svolítið svona hvað með þig-spurning. Samskipti við Evrópusambandið eru á grundvelli framkvæmdarvaldsins en ég skal alveg fallast á það að það hefði líklega verið æskilegra að fara yfir þetta mál í utanríkismálanefnd á sínum tíma, áður en það var framkvæmt. En það er ekki þar með sagt að ef eitthvað hefði betur mátt fara einhvern tímann áður þá eigi að halda áfram að bæta þar í og ganga fram með þeim hætti sem nú er gert.