þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Já, eitthvað verður manni ágengt í þessari umræðu. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að skýra það að hann telji ekki að flokkur minn standi á bak við þessa botta enda held ég reyndar, svo það sé sagt, að við ættum að fara varlega í það að klína einhverjum svona nafnlausum bottum á hvert annað af því að það kann að vera að það séu aðilar þarna úti sem taka þátt í því að reyna að búa til einhverja upplýsingaóreiðu í samfélaginu, er alveg sama um málstaðinn, vilja bara einhvern veginn fá fram þessa heift og þessa skautun. Svo er bara ánægjulegt að þingmaðurinn hafi líka tekið undir að það hefði verið æskilegra að hafa fullt samráð við utanríkismálanefnd.
Mig langar að lokum að spyrja þingmanninn um það að nú eru þrjú minnihlutaálit og hans álit er á því að það eigi alls ekki að samþykkja þetta mál en Sjálfstæðisflokkurinn vill samþykkja málið en með smá breytingum, breytingu á dagsetningu, orðalagi og einhverjum tilfærslum. Er það þá þannig að hans flokkur og Sjálfstæðisflokkur séu algerlega ósammála í þessu máli? (Forseti hringir.) Hvað finnst honum um þá niðurstöðu Sjálfstæðisflokksins að það sé fínt að kjósa um þetta,(Forseti hringir.) bara aðeins seinna?