157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:36]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Örstutt að bottunum aftur. Það sem Viðreisnarsinnuðu bottarnir þó sýna er að slíkt getur komið úr ýmsum áttum. Það er kannski rétt að hafa það í huga núna í aðdraganda væntanlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Einnig varðandi samskipti við utanríkismálanefnd á sínum tíma, þá láðist mér að árétta að það voru auðvitað heilmikil samskipti milli ráðuneytis, nefndar og ríkisstjórnar og Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur ítrekað beðið um að fá þessi gögn afhent frá utanríkisráðuneytinu. Ekki hefur verið orðið við þeirri beiðni, henni hefur þvert á móti verið hafnað og Gunnar Bragi Sveinsson nefndi þetta einnig fyrir utanríkismálanefnd. Ég tel að það myndi varpa heilmiklu ljósi á samskiptin milli utanríkismálanefndar og þingsins og utanríkisráðuneytisins á sínum tíma.

En varðandi Sjálfstæðisflokkinn og skoðanir hans (Forseti hringir.) á þessu máli þá verðum við líklega bara að bíða eftir ræðu hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur sem er væntanleg hér í ræðustólinn.