157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:38]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að halda áfram með bottana eða vélmennin af því að ég fjallaði um það í ræðu minni að eitt af því sem mér fyndist að ríkisstjórnin hefði átt að gera áður en hún lagði af stað í þessa vegferð — sem, eins og hv. þingmaður kom inn á, gerðist furðu skjótt á sínum tíma, í byrjun mars, þegar verðbólgan mældist yfir 5% í þriðja sinn á þessu ári — væri einmitt að setja löggjöf sem myndi takmarka. Alveg eins og kom fram í samtali hv. þingmanns við formann utanríkismálanefndar er ekkert alltaf hægt að henda reiður á því hvaðan þessir hlutir koma en það væri hugsanlegt að setja löggjöf sem væri mögulegt að myndi takmarka þessa þátttöku, af því við vitum að það eru allt of margar freistingar í þessu máli að búa til upplýsingaóreiðu og halda ýmsu fram.

Ég vildi bara spyrja hv. þingmann hvort hann væri ekki sammála því sem við vorum að leggja hér fram og ég mælti fyrir í mínu máli, að ríkisstjórnin hefði og þyrfti að setja löggjöf á þessu sviði áður en við göngum til þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu.