157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:39]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég get hiklaust tek ég undir með hv. þingmanni. Þetta er áhyggjuefni og það virðist ljóst, m.a. af því dæmi sem hér hefur verið til umræðu, að það sé litlum vörnum við komandi miðað við núverandi ástand og stöðu. Við hljótum þá að gera ráð fyrir því frekar en hitt að svona leiðum verði beitt í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni. Hv. þingmenn Framsóknarflokksins hafa minnt á það lengi að það væri mikilvægt að gera ráðstafanir hvað þetta varðar en það hafa engir tilburðir verið gerðir til að bregðast við því og það er áhyggjuefni. Hugsanlega er ástæðan sú að þegar hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn meiri hlutans hér tala um upplýsingaóreiðu þá er verið að gefa til kynna að hún komi einhvers staðar annars staðar frá en viljinn til að taka á upplýsingaóreiðu frá þeim sem styðja þeirra málstað hefur ekki bara verið takmarkaður, hann hefur enginn verið. Þetta var býsna áberandi á blaðamannafundinum þar sem málið var fyrst kynnt þegar einhver úr sal spurði hvort hún hefði ekki áhyggjur af erlendum afskiptum. Jú, jú, ráðherrarnir töldu svo vera. Þá spurði annar: En hefurðu áhyggjur af erlendum afskiptum frá Evrópusambandinu? Og það hafði ekki hvarflað að hæstv. ráðherrum, að þeirra sögn. Þó hafði Evrópusambandið, herra forseti, lýst því yfir í forsendum viðræðna á sínum tíma að það ætlaði að beita sér.