157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:42]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það væri mjög mikilvægt að gera þetta. En víkjum að öðru: Hv. formaður utanríkismálanefndar, framsögumaður málsins, staðfesti það við mig í andsvari áðan að hann og meiri hlutinn litu svo á að gamla þingsályktunin væri enn í gildi. Þess vegna var áhugavert að heyra í ræðu þingmannsins þegar hann fór yfir í hverju slíkar viðræður felast, sem er auðvitað aðlögun að Evrópusambandinu því að markmiðið er jú að ganga í Evrópusambandið. Ef þú ferð í viðræður við 400 manna bandalag 27 ríkja þá hlýtur markmiðið að vera það að þú sért að fara að verða aðili að þessu sambandi. Það að þurfa að falla frá sjálfstæðri utanríkisstefnu og dómsmálum hlýtur að verða umhugsunarefni fyrir einhvern. En það sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í er það að allir tvíhliða samningar, þar á meðal 35 fríverslunarsamningar sem Ísland hefur við m.a. Kína og Indland, (Forseti hringir.) samningar sem Evrópusambandið hefur ekki, falla niður samdægurs. Við munum ekki geta gert slíka samninga framar, ekki heldur ef við þó færum þá leið (Forseti hringir.) sem ég var að leggja til, að við myndum stofna vestnorrænt efnahagsbandalag með Færeyingum og Grænlendingum sem ég er sannfærður um að myndu fá fríverslunarsamning við Bandaríkin á einni viku. Hvað finnst hv. þingmanni um það?