þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég er mjög hrifinn af norðvestur-hugmyndinni, fríverslunarsamningi Íslands við Grænland og Færeyjar. En eins og hv. þingmaður vék að þá hefur Ísland fríverslunarsamninga við fjölmörg lönd, stór og smá, og raunar eru fá lönd í heiminum sem hafa fríverslunarsamninga við eins mörg lönd og Ísland, margir gerðir í gegnum EFTA-samstarfið, sumir tvíhliða, en allt þetta missum við. Við missum einfaldlega tækifærið til að gera þær ráðstafanir sem henta okkur og drögumst inn í ráðstafanir sem eru sniðnar að einhverjum öðrum. Ég myndi vilja nefna einn slíkan samning í viðbót sem mun tapast, hverfa, verða fyrir bí og líklegast ekki endurheimtast, verði þetta niðurstaðan, og það er EES-samningurinn.