þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Áður en ég byrja á minni löngu, þéttskrifuðu ræðu sem ég hef vandað mig mjög vel við að skrifa þá langar mig aðeins að biðja hv. formann utanríkismálanefndar um að slaka aðeins á þeim ályktunum sem hann dregur af áliti 3. minni hluta og biðja hann vinsamlegast um að vera ekki að spyrða okkur saman við vinnubrögð meiri hlutans sem ég mun fara yfir hér í löngu máli. Það er ýmislegt hægt að lesa út úr álitinu okkar um það. En það liggur hins vegar fyrir að hér mun fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla, fyrir því er þingmeirihluti. Við hlökkum til að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Við viljum losna og losa íslensku þjóðina við þessa pólitísku óværu og hlökkum til.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp fyrir hönd 3. minni hluta utanríkismálanefndar, okkar Sjálfstæðismanna, og vísa til nefndarálits sem liggur frammi en undir það skrifum við hv. þingmaður og samflokkskona mín, Hildur Sverrisdóttir.
Aðild Íslands að Evrópusambandinu var ekki sérstakt kosningamál í síðustu alþingiskosningum. Þótt tveir stjórnarflokkanna, Samfylking og Viðreisn, hafi lengi haft þá stefnu að Ísland ætti að ganga inn í ESB, settu þeir aðild alls ekki á oddinn fyrir kosningarnar 30. nóvember 2024. Formaður Samfylkingarinnar lýsti því þvert á móti ítrekað yfir fyrir alþingiskosningarnar að önnur mál en ESB yrðu í forgangi hjá flokki hennar kæmist hann til valda. Aðeins 18 mánuðum síðar hefur Samfylkingin sett aðild Íslands að ESB á dagskrá og ýtt þingstörfum og samfélagsumræðum til hliðar vegna þess máls núna og hugsanlega það sem eftir lifir kjörtímabilsins og það þótt ríkisstjórnin sé klofin í afstöðu sinni til aðildar Íslands að ESB. Flokkur flokksins, þriðji stjórnarflokkurinn, hefur að minnsta kosti hingað til verið andvígur aðild.
Í hópi stjórnarliða og hæstv. ráðherra eru því hv. þingmenn sem halda áfram að lýsa yfir andstöðu við aðild á sama tíma og ríkisstjórnin óskar eftir umboði þjóðarinnar til viðræðna um aðild Íslands að ESB. Í öðrum löndum er þetta óþekkt staða þegar svo afdrifaríkt mál er á dagskrá. Þetta minnir auðvitað á stöðuna sem hér var á árunum 2009–2013 þegar þáverandi vinstri stjórn reyndist ófær um einhuga hagsmunagæslu í viðræðum við fulltrúa ESB. Þær viðræður runnu enda út í sandinn. Þriðji minni hlutinn harmar að í stað þess að einbeita sér að brýnum verkefnum hér innan lands ali ríkisstjórnin á ótta og sundrung í því skyni að koma gömlu stefnumáli Samfylkingar og Viðreisnar aftur í farveg með flokkshagsmuni að leiðarljósi í stað þjóðarhagsmuna. Þær takmörkuðu upplýsingar sem hæstv. utanríkisráðherra hefur þó afhent utanríkismálanefnd um samskipti hæstv. ráðherra við fulltrúa ESB-ríkja og embættismenn sambandsins sýna svo ekki verður um villst að hún hefur undirbúið aðild Íslands að ESB mánuðum saman í þéttu samráði við ESB á sama tíma og nauðsynlegum upplýsingum hefur verið haldið frá þingi og þjóð.
Það er ástæðulaust að gagnrýna að hæstv. utanríkisráðherra kynni stefnu ríkisstjórnarinnar eins og hún hefur verið kynnt þjóðinni í stjórnarsáttmála. Hitt er að hæstv. ráðherra hefur gengið lengra en góðu hófi gegnir í þessu efni og ræddi til dæmis við forsvarsmenn ESB um aðferð og málsmeðferð vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 15. janúar 2025, innan við mánuði eftir að hafa tekið við embætti sínu og án samráðs við utanríkismálanefnd. Á fundinum með stækkunarstjóra ESB þennan dag var ráðherranum tilkynnt að stækkunardeildin teldi umsókn Íslands frá 2009 vera gilda. Hæstv. utanríkisráðherra skýrði þó ekki frá þessum fundi sínum með stækkunarstjóranum í sérstakri fréttatilkynningu af fundum sínum í Brussel 15. janúar 2025.
Almenningur ætti að staldra við þetta. Hæstv. utanríkisráðherra heldur til Brussel, eins og hún hefur gert linnulaust síðastliðna 18 mánuði, til að funda með ESB. Hún gefur út fréttatilkynningu og myndir um fundina en leynir fundi með stækkunarstjóra ESB. Af hverju? Af hverju er þessum fundi haldið leyndum? Af hverju heyrðum við fyrst af þessum fundi þegar við höfðum gengið eftir því í utanríkismálanefnd nýlega að fá yfirlit yfir samskipti hæstv. ráðherra við ESB? Það er full ástæða til að lýsa undrun yfir því að meiri hluti utanríkismálanefndar skuli sætta sig við að nefndin sé sett til hliðar á þennan hátt. Í raun leggur meiri hlutinn blessun sína yfir framferði hæstv. utanríkisráðherra. Það skýrist auðvitað við lestur álits meiri hlutans með þessari tillögu. Þar leitar hann nefnilega skjóls í afstöðu stækkunardeildarinnar sem var kynnt ráðherranum 15. janúar 2025.
Virðulegi forseti. Í dag byrjum við að ræða aðild Íslands að ESB, kosti og galla ESB, því það er auðvitað það sem málið snýst um. Væri gott fyrir Ísland að ganga í ESB? Ef svarið er nei eigum við auðvitað ekki að eyða tíma, orku og miklum fjármunum í viðræður um aðild. Næg eru verkefnin hér innan lands. En áður en við snúum okkur að því er nauðsynlegt að fara yfir tillögu hæstv. utanríkisráðherra, yfir málsmeðferð og framferði meiri hlutans í utanríkismálanefnd og ávarpa að einhverju leyti nefndarálit meiri hluta nefndarinnar.
Þriðji minni hluti telur að tillagan, eins og hún liggur fyrir, og jafnvel með þessari einu breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar, sé ekki nægilega undirbúin, ekki nægilega skýr og einfaldlega ekki lögð fram með þeim hætti sem við eigum að gera kröfu um fyrir hönd þjóðarinnar þegar um svo afdrifaríkt mál er að ræða. Kjarninn í okkar gagnrýni er í raun einfaldur: Þessi stjórnarmeirihluti biður ekki um afstöðu þjóðarinnar á grundvelli skýrra upplýsinga um hvað bíður hennar. Hann leggur ekki fram neinar varnarlínur, ekki skýr og ófrávíkjanleg samningsskilyrði. Ekkert sjálfstætt hagsmunamat eða greining hefur farið fram fyrir Ísland vegna þessarar tillögu, það var staðfest við vinnu nefndarinnar. Engu að síður er þjóðin beðin um að segja já — veita hæstv. utanríkisráðherra opið umboð til samningaviðræðna. Og við hverju er þjóðin þá að segja já? Þar liggur einmitt vandinn; það er ekki nægjanlega skýrt, langt í frá.
Virðulegi forseti. Í nefndaráliti meiri hlutans eru viðræður þáverandi ríkisstjórnar reifaðar. Þar eru dregin fram atriði sem henta söguskýringu meiri hlutans og skautað yfir önnur. Þess er meðal annars ekki getið að vorið 2015 samþykkti formaður ráðherraráðs ESB að taka Ísland af skrá yfir umsóknarríki sambandsins. Við þekkjum það vel sem störfum í utanríkismálanefnd og sækjum þingmannaráðstefnur ESB á ári hverju í hvaða hóp við erum flokkuð þar. Hér sé ég nokkra ágæta kollega mína í utanríkismálanefnd. Hverjir skyldu hóparnir vera? Gestum á ráðstefnunum er skipt í þrjá hópa. Fyrsti hópurinn er aðildarríki, annar hópur er umsóknarríki og þriðji hópurinn er áheyrnaraðilar. Allir þeir þingmenn sem sitja hér og sitja í hv. utanríkismálanefnd þekkja það vel að við erum áheyrnaraðilar á þessum fundum og höfum verið það undanfarinn rúman áratug. Þetta þekkja hv. þingmenn vel en halda öðru fram gegn betri vitund. Við erum áheyrnaraðilar á þingmannaráðstefnum ESB, við erum ekki umsóknarríki og höfum ekki verið flokkuð sem slíkt í yfir áratug.
Tilgangur meiri hluta nefndarinnar með þessu er að rökstyðja það að tillaga hæstv. utanríkisráðherra mótist af formlegri stjórnsýsluafstöðu ESB, þá einkum stækkunardeildar framkvæmdastjórnarinnar, en taki ekki mið af samfelldri pólitískri þróun hér á landi frá árinu 2013. Það á sem sagt að byggja viðræður við ESB á því sem embættismenn ESB segja eftir að hafa átt leynifundi með hæstv. utanríkisráðherra. Svo einfalt er það. Viðræður við ESB hafa legið í láginni í þrettán ár. Engin ríkisstjórn hefur endurvakið þær, engar samninganefndir hafa starfað og ekkert pólitískt samkomulag ríkt um framhald þeirra. Kjósendur hafa ítrekað í þingkosningum stutt til meiri hluta flokka sem annaðhvort eru andvígir aðild eða vilja ekki halda neinum viðræðum áfram. Meiri hlutinn lítur alfarið fram hjá þessari samfelldu pólitísku þróun hér á landi en sækir þess í stað rök í tæknilega afstöðu embættismanna innan framkvæmdastjórnar ESB um að umsóknin hafi ekki verið formlega afturkölluð. Þannig er mat embættismanna innan stofnana ESB á formsatriðum látið vega þyngra en raunveruleg stefnumörkun íslenskra stjórnvalda og niðurstöður kosninga til Alþingis um langt árabil.
Í áliti sínu styðst meiri hlutinn mjög við þann pólitíska og efnislega grunn sem lagður var í nefndaráliti meiri hlutans árið 2009 þegar Alþingi samþykkti aðildarumsóknina í skugga bankahrunsins. Þá var aðild kynnt sem leið til efnahagslegs og pólitísks stöðugleika við aðstæður sem voru gjörólíkar þeim sem ríkja í dag. Þá var það hræðsluáróðurinn; í dag eru það aðrar aðstæður sem eiga að hræða okkur til fylgis við ESB-aðild. Þessi grunnur meiri hlutans er að verulegu leyti tímaskekkja. Pólitískt og alþjóðlegt umhverfi hefur gjörbreyst á þeim sautján árum sem liðin eru. Innri og ytri staða ESB er allt önnur en árið 2009. Bretar hafa gengið úr sambandinu, stækkunarþreyta er sýnileg innan þess og öryggis- og varnarmál Evrópu hafa tekið stakkaskiptum. Feneyjanefndin fer ágætlega yfir þetta í áliti sínu til nefndarinnar.
Virðulegi forseti. Ríkisstjórn og ráðherrar Íslands starfa í umboði Alþingis. Það á við um öll embættisverk þeirra og eru samningaviðræður við ESB síður en svo þar undanskildar. Það færi þess vegna gegn grundvallarhugmyndum um þrískiptingu ríkisvalds og hlutverk Alþingis að tillaga væri lögð fram til þjóðarinnar frá hæstv. utanríkisráðherra um opið umboð til viðræðna um aðild Íslands að ESB, eins og hv. ráðherra leggur upp með í tillögu sinni. Þriðji minni hluti gagnrýnir að ekki hafi átt sér stað neitt sjálfstætt mat, forgangsröðun eða skilgreining á stöðu Íslands og hagsmunum landsins. Upptalning meiri hlutans á hagsmunum Íslands jafngildir ekki raunverulegu hagsmunamati. Ef kemur til viðræðna við ESB er mikilvægt að fyrir liggi afmörkun umboðsins frá Alþingi, ákveðnar varnarlínur í viðræðunum og þau skilyrði sem íslensk stjórnvöld setja fyrir inngöngu í sambandið; tíundað sé hverjir mikilvægustu hagsmunir Íslands eru og hvernig þeir verði varðir í ferlinu. Þessa kröfu um að ríkisstjórnin hefji þessa vegferð án kortlagningar í samráði við Alþingi og samkvæmt umboði þess má auðvitað rekja til ósamstöðu um málið innan ríkisstjórnarinnar. Það er hreinlega ekki til staðar þingmeirihluti að baki þessu skrefi inn í ESB sem ríkisstjórnin ætlar að stíga, samþykki meiri hluti kjósenda tillöguna sem við ræðum hér.
Rifjum nú aðeins upp söguna. Í undirbúningi fyrir viðræður Íslands við ESB 2009–2013 fór fram umfangsmikil vinna við mótun samningsmarkmiða og -skilyrða Íslands. Þau voru mótuð í meðferð utanríkismálanefndar og lágu fyrir í nefndaráliti áður en þingsályktun um viðræður við ESB var afgreidd á Alþingi. Eins og farið hefur verið hér yfir byggðist sú vinna á samstarfi og sátt. Umfjöllun meiri hlutans um samningsmarkmið er að miklu leyti endurtekið efni frá áliti meiri hluta utanríkismálanefndar árið 2009 auk beinna tilvísana í minnisblöð. Þó er áhyggjuefni að meiri hluti nefndarinnar virðist slá verulega af þeim kröfum sem gerðar voru í viðræðunum 2009–2013, m.a. í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum. Til að mynda segir í nefndaráliti þáverandi meiri hluta utanríkismálanefndar við tillöguna til þingsályktunar sem samþykkt var árið 2009 að meiri hlutinn telji, með leyfi forseta, „afar mikilvægt að Íslendingar fari með samningsforræði við stjórn veiða úr deilistofnum eins og hægt er […]“. Í áliti meiri hlutans nú er sú krafa aftur á móti ekki sett fram. Í áliti meiri hlutans frá árinu 2009 segir jafnframt að samkvæmt meginreglum sáttmála ESB taki sambandið yfir fyrirsvar aðildarríkjanna í samningum á ýmsum sviðum, þ.m.t. á sviði fiskveiða og hafréttar, og að meiri hlutinn telji, með leyfi forseta:
„ […] rétt að látið verði reyna á það í hugsanlegum samningaviðræðum við ESB að Ísland haldi forræði sínu á þessum sviðum og tali eigin máli á vettvangi alþjóðastofnana í alþjóðasamningum með eins víðtækum hætti og unnt er, enda um grundvallarhagsmuni þjóðarinnar að tefla efnahagslega.“
Í landbúnaðarmálum slær meiri hluti utanríkismálanefndar einnig af þeim kröfum sem gerðar voru í meirihlutaálitinu frá 2009 og eru dæmi um það rakin í áliti 3. minni hluta.
Þessi dæmi sem ég hef rakið hér, og er frekari dæmi að finna í nefndaráliti 3. minni hluta, eru dæmi um óútskýrða og óskiljanlega eftirgjöf meiri hlutans á grundvallarhagsmunum Íslands í viðræðum við ESB og þau vekja athygli og undrun. Endurteknar yfirlýsingar meiri hlutans um að samningsstaða Íslands sé sterkari en hún var 2009–2013 endurspeglast ekki í kröfum meiri hluta nefndarinnar. Þvert á móti virðist meiri hlutinn líta svo á að samningsstaða Íslands sé umtalsvert veikari í ljósi þess að hann slær af í kröfum sínum. Að mati 3. minni hluta eru samningskröfur og -skilyrði Íslands í viðræðunum 2009–2013 lágmarkskröfur um sjálfsstjórn og forræði Íslands á eigin málum sem ekki á að gefa eftir í viðræðum um aðild.
Þá er rétt að líta til þess — og þetta er mjög mikilvægt atriði — að í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar árið 2009 var lögð til breytingartillaga þar sem kveðið var á um skyldu ríkisstjórnarinnar til að, með leyfi forseta, „fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar“. Það vekur því athygli að meiri hlutinn leggi ekki til að tilvísun til leiðsagnar hennar, þótt hún sé óljós eða almennt orðuð, verði skrifuð inn í þingsályktunartextann. Sé það ekki gert getur ríkisstjórnin með öllu leitt hjá sér álit meiri hlutans kjósi hún svo.
Álit meiri hlutans vekur upp fleiri spurningar en svör. Með því að þylja upp vinnu Alþingis frá árinu 2009 varðandi hagsmuni Íslands er meiri hlutinn þá að leggja sömu sjónarmið til grundvallar? Svo ég vísi í orðalag í áliti meiri hlutans; hvað þýða orð eins og að hagsmunir og reglur séu „áréttaðir“, að „raunhæf leið“ sé kynnt til að tryggja forræði yfir auðlindum, og að „leitað sé leiða“ til að tryggja ákveðna hagsmuni. Hvað þýðir þetta óljósa orðalag? Hvort er um markmið að ræða eða ófrávíkjanleg skilyrði? Ýmsu er velt upp í áliti meiri hlutans en það sem þjóðin þarf að vita er hvort um vangaveltur sé að ræða eða ófrávíkjanleg skilyrði. Og ef þetta eru skilyrði, af hverju er þá ekki lagt til af hálfu meiri hlutans að skilyrðin séu skrifuð inn í tillögutextann um þjóðaratkvæðagreiðsluna eins og gert var árið 2009? Á meðan þetta er óskýrt í almennri umfjöllun meiri hlutans er ekki hægt að draga aðra ályktun en að Ísland muni ekki gera ófrávíkjanlega kröfu um full yfirráð, forræði og lagasetningarvald yfir auðlindum sínum. Það sama gildir um samningsforræði sitt í samningum við önnur ríki vegna auðlinda Íslands. Raunar fær sú ályktun stoð í svörum formanns utanríkismálanefndar hér áðan, hv. þm. Pawels Bartozek, þar sem hann sagði okkur ekki eiga að fara í skilyrtar samningaviðræður við ESB. Það er ágætt að íslenska þjóðin viti af þessari afstöðu stjórnarmeirihlutans en það er spurning hvort fulltrúi Flokks fólksins taki undir þessi sjónarmið og verður fróðlegt að heyra frá hv. þingmönnum þeirra í þessari umræðu.
Ef málið fer í gegn óbreytt, með einni breytingartillögu meiri hlutans um orðalag spurningarinnar, er staðan því þessi: Þjóðin á að treysta í blindni á hagsmunagæslu hæstv. utanríkisráðherra og ríkisstjórnarinnar og mat hennar á því hvort og hvaða hagsmunir Íslands séu þar undir. Í því samhengi er gott að hafa í huga að tveir af þremur ríkisstjórnarflokkum hafa haft þá yfirlýstu stefnu að ganga í ESB árum og áratugum saman. Ég bið þjóðina um að hafa nokkur atriði í huga þegar hún metur hvort hún vilji veita hæstv. utanríkisráðherra opið umboð, án nokkurra skilyrða, til að semja við ESB. Þetta eru atriðin: Hæstv. utanríkisráðherra er formaður flokks sem var stofnaður utan um það markmið að Ísland gangi í ESB. Hæstv. utanríkisráðherra fer ein með forræði utanríkismála á Íslandi. Ríkisstjórnin er ekki fjölskipað stjórnvald og hún þarf ekki að bera embættisverk sín undir aðra ráðherra. Hæstv. ráðherrar hafa þegar á síðastliðnum mánuðum stóraukið samvinnu við ESB og tekið ákveðin skref sem samrýmast aðild að ESB, án nokkurrar aðkomu eða upplýsinga til þings eða þjóðar. Það er því hægt velta því fyrir sér hvernig vinnubrögðin verða þegar og ef hæstv. ráðherra fær opið umboð frá þjóðinni gagnvart ESB.
Þjóðin þarf því að gera það upp við sig hvort hún treysti hæstv. utanríkisráðherra til þess að semja við ESB, án þess að henni sé áður settur skýr rammi um ófrávíkjanleg skilyrði af hálfu Íslands. Trúir því nokkur maður að hæstv. utanríkisráðherra, af öllu fólki, gangi það eitt til að kíkja í einhvern pakka? Af ummælum hæstv. ráðherra verður ekki annað ráðið en að ríkisstjórnin telji samningsstöðu Íslands sterkari nú gagnvart ESB en á árunum 2009–2013 þegar viðræður sigldu í strand, ekki síst vegna ágreinings sem tengdist sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum. Engin svör hafa fengist frá hæstv. ráðherrum ríkisstjórnarinnar á hvaða staðreyndum bjartsýnar yfirlýsingar þeirra um sterka stöðu Íslands eru reistar, hvorki á opnum né lokuðum fundum nefndarinnar. Meiri hlutinn gengur, eins og hæstv. ráðherrar, út frá því að hægt verði að tryggja varðstöðu um sérstöðu Íslands með undanþágum og byggir undir væntingar almennings til þess. Ekkert mat hefur hins vegar verið lagt á það hvort ástæða sé til að vænta undanþága eða aðlagana frá regluverki ESB varðandi mikilvæga hagsmuni Íslands. Það hefur ekkert efnislegt komið fram við vinnu nefndarinnar sem gefur tilefni til þess að ætla að Ísland fái varanlegar undanþágur frá meginreglum ESB í viðræðum. Aðeins hefur verið vísað til óformlegra samskipta, m.a. kaffispjalls, samanber orð hæstv. forsætisráðherra. Hæstv. ráðherrar hafa síðan hafnað því að veita almenningi upplýsingar um innihald samskiptanna við ESB.
Þriðji minni hluti harmar að ekki séu hið minnsta lögð til sömu vinnubrögð og voru viðhöfð hér í tíð Jóhönnustjórnarinnar. Það er með öllu óásættanlegt að ekki standi til að kynna markmið eða skilyrði í viðræðum við ESB fyrir almenningi, komi til viðræðna um aðild Íslands að ESB. Tillagan er sú að þessi vinna sé sett í hendur hv. utanríkisráðherra og að henni ljúki ekki fyrr en eftir fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Forsenda þess að almenningur geti tekið afstöðu til viðræðna við ESB er að upplýst sé um hvaða skilyrði íslensk stjórnvöld telji ófrávíkjanleg — ef þau eru þá nokkur. Þjóðaratkvæðagreiðsla sem efnt er til án þess að kjósendur viti til hvers hún leiðir er markleysa og stenst ekki nein eðlileg viðmið þegar þjóð er kölluð til slíkrar stórákvörðunar. Það er ámælisvert að ætla Alþingi að afgreiða þá tillögu sem hér er til umræðu án þess að grunnskilyrði í boðuðum viðræðum séu kynnt þingheimi.
Við í minni hluta utanríkismálanefndar, stjórnarandstaðan, leggjum því fram breytingartillögu sem kveður á um að ráðherra beri að kynna samningsskilyrði Íslands gagnvart ESB að lágmarki 30 dögum áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram. Með því viljum við tryggja að kjósendur séu upplýstir um fyrirætlanir stjórnvalda í viðræðum um aðild að ESB. Ljóst er að inntak þessara skilyrða hefur áhrif á hvernig kjósendur greiða atkvæði, til að mynda hvort og þá hvaða skilyrði stjórnvöld setja varðandi auðlindir Íslands.
Virðulegi forseti. Við meðferð þessarar tillögu verðum við að hafa í huga aðlögunareðli viðræðna við ESB. Því hefur verið haldið fram að engin aðlögun Íslands að ESB muni eiga sér stað í viðræðuferlinu. Reyndar hefur framlagðri fyrirspurn þess efnis þó ekki verið svarað formlega á Alþingi. Aðlögunin hefst ekki með lagasetningu heldur með stefnumótun, undirbúningi og skuldbindingum sem móta niðurstöðu samninga. Hún er rauði þráðurinn í ferlinu frá upphafi, jafnvel þótt hún verði ekki lögfest fyrr en í lok þess. Þess vegna veitir ESB milljarða í aðlögunarstyrki til ríkja sem eiga í viðræðum við sambandið; styrki sem við þáðum einmitt í síðustu vinstri stjórn. Þá þáðum við 8 milljarða í aðlögunarstyrki. Í þessu samhengi má benda á opinbera afstöðu Evrópusambandsins sjálfs en á heimasíðu sambandsins er viðræðum um aðild lýst sem ferli sem feli m.a. í sér upptöku laga ESB. Þessu geta allir flett upp og lesið sjálfir. Því er ljóst að í viðræðunum felst innleiðing á reglum sambandsins en að öðrum kosti getur viðræðum ekki lokið. Viðræður við ESB um aðild eru ekki bara samningaviðræður sem innihalda engar efnislegar aðgerðir eða breytingar heldur fela þær óhjákvæmilega í sér að umsóknarþjóðir breyta stjórnsýslu sinni og regluverki sínu til samræmis við reglur ESB. Að halda öðru fram er ekki heiðarlegt.
Virðulegi forseti. Tímans vegna ætla ég ekki að verja löngum tíma í að nefna vinnubrögð hv. utanríkisráðherra og meiri hluta utanríkismálanefndar. Það hefur komið fram að ráðherra lagði málið fram án samráðs við almenning og hagsmunaaðila. Hún hafði ekki lögbundið samráð við landskjörstjórn með þeim afleiðingum að orðalag spurningarinnar hefur m.a. vafist mjög fyrir nefndinni og hér eru komnar fram a.m.k. tvær, ef ekki fleiri, breytingartillögur þess vegna. Svo var auðvitað augljóst að meiri hlutinn var undir mikilli tímapressu og málsmeðferð fyrir nefndinni bar mikinn keim af því. Málið varð lögum samkvæmt að afgreiða eigi síðar en 29. maí næstkomandi og þá mátti ekki hnika dagsetningunni um einn einasta dag. Að óbreyttu verður landskjörstjórn einungis veittur lágmarkstími samkvæmt kosningalögum til að kynna málefni þjóðaratkvæðagreiðslunnar og því fylgja ýmsir ókostir eins og lýst er í umsögnum til nefndarinnar. Það hafa engin sérstök rök hafa verið lögð til grundvallar dagsetningunni 29. ágúst, þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, og ekki verður séð að seinkun dagsetningar geti haft neikvæð áhrif í för með sér. Því leggur minni hluti nefndarinnar, stjórnarandstaðan, fram breytingartillögu þess efnis.
Virðulegi forseti. Stjórnarandstaðan leggur sömuleiðis til breytingu á orðalagi spurningarinnar sem ríkisstjórnin vill leggja fyrir þjóðina, eins og ég hef þegar farið yfir. Það er auðvitað ótrúlegt þegar maður hugsar til þess að þetta er stærsta baráttumál Viðreisnar árum saman að loks þegar tækifæri gefst til þess að koma þessu máli í einhvern farveg innan Alþingis er málið svona hrikalega illa undirbúið. Það er auðvitað ótrúlegt að hugsa til þess. Tillaga stjórnarandstöðu nefndarinnar er samhljóða tillögu minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Lagt er til að þjóðin verði spurð að þessari spurningu: „Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið?“ Okkar mat er að þegar þjóð er kölluð til atkvæðagreiðslu um mál af þessari stærðargráðu þá verði spurningin að vera hafin yfir allan vafa.
Virðulegi forseti. Það er óhjákvæmilegt að ræða stjórnarskrá Íslands þegar við ræðum hugsanlega aðild Íslands að ESB. Lagastofnun Háskólans hefur bent á að aðild myndi kalla á stjórnarskrárbreytingar vegna þess mikla framsals valds sem færi fram; framsal löggjafar, framsal framkvæmdar, og framsal dómsvalds. Þriðji minni hluti tekur undir álit Lagastofnunar og telur að betur hefði farið á því ef ríkisstjórnin hefði undirbúið umsóknarferlið með viðunandi hætti.
Virðulegi forseti. Kostnaðarþátturinn skiptir líka máli en ekkert er að finna um hann í tillögu hæstv. utanríkisráðherra. Við vitum það sjálf, og höfum komist að því við vinnu nefndarinnar að þjóðaratkvæðagreiðslan kostar verulega fjármuni, hundruð milljóna. En það sem skiptir ekki síður máli er að almenningur á rétt á ítarlegum upplýsingum um efnahagsleg áhrif hugsanlegrar aðildar. Ekki bara um mögulegan ávinning samkvæmt bjartsýnustu sviðsmyndum, heldur um skuldbindingar — raunframlög. Staðreyndin er auðvitað sú að Ísland yrði svonefndur „nettógreiðandi“ í ESB, sem sagt skyldubundin fjárframlög til ESB næmu mun meiru en það sem fengist til baka frá sambandinu í formi styrkja. Í dag eru tíu ESB-ríki nettógreiðendur, greiða sem sagt meira en þau fá frá ESB, en 17 ríki þiggja meira en þau leggja til sambandsins. ESB er nefnilega millifærslukerfi. Það gengur mikið til út á að færa fjármuni frá hinum ríkari löndum til hinna fátækari.
Virðulegi forseti. Það er farið að síga á seinni hluta þessarar ræðu hjá mér sem verður alveg örugglega ekki sú síðasta í þessari umræðu. Ég þarf auðvitað að komast í það að ræða almennilega kosti og galla aðildar Íslands að ESB. Mig langar að segja hér að lokum, virðulegi forseti: Þriðji minni hluti telur að það sé ekki hægt að kalla þjóðina til atkvæðagreiðslu um jafn afdrifaríkt mál án þess að fyrir liggi skýr samningsskilyrði, greinargerð um ófrávíkjanlegar kröfur Íslands í viðræðum og raunhæft mat á stjórnskipulegum, efnahagslegum og pólitískum áhrifum viðræðna við ESB. Málsmeðferð ríkisstjórnarinnar og meiri hlutans hefur einkennst af hraða, skorti á upplýsingagjöf og tilhneigingu til að treysta á tæknilega niðurstöðu innan embættiskerfis ESB fremur en pólitískan veruleika hér á Íslandi frá árinu 2013. Þjóðaratkvæðagreiðsla sem fer fram án skýrra forsendna, fullnægjandi upplýsingagjafar og án þess að kjósendur viti hvaða hagsmuni stjórnvöld hyggjast verja í viðræðum við ESB er vanhugsuð. Kjósendur verða að vita hvað felst efnislega í lýðræðislegu umboði þeirra og til hvaða stjórnskipulegu breytinga það leiðir. Það er lágmarkskrafa í lýðræðisþjóðfélagi.