þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það er ástæða til að hrósa hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur og hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir mjög gott og vel ígrundað nefndarálit sem ég tel að muni koma að miklu gagni í þessari umræðu. Það er raunar svo margt sem þar kemur fram að maður á erfitt með að afmarka spurninguna. En ég ætla að byrja á að spyrja hv. þingmann út í það sem er ágætlega rakið varðandi fundi hæstv. utanríkisráðherra með fulltrúum Evrópusambandsins um m.a. og ekki hvað síst aðildarviðræður. Það vekur auðvitað athygli, eins og hv. þingmaður benti á, að þessu hafi verið haldið leyndu, reynt að gera sem minnst úr þessu þangað til hv. minni hluta utanríkismálanefndar tókst að knýja fram upplýsingar um þetta. En hvað segir þetta okkur um hvers megi vænta frá hæstv. utanríkisráðherra verði samþykkt að fara í viðræður við Evrópusambandið? (Forseti hringir.) Ef hæstv. ráðherra upplýsir ekki einu sinni fólk um viðræður sem eiga sér stað fyrir formlegt samþykki, hvers er að vænta ef leyfið verður veitt?