157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:20]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir ágæta ræðu og ég fagna því að hér sé verið að slá tón í efnislegum umræðum sem ekki hefur kannski farið mikið fyrir í almennri umræðu og umræðunni sem hefur átt sér stað í hv. utanríkismálanefnd.

Sá kafli álitsins sem varðar skilyrði Íslands í viðræðum við ESB er að mínu mati áhugaverður. Ég vil í fyrsta lagi spyrja hv. þingmann, fyrst hér er vísað í vinnu og samstarf og sátt milli meiri hlutans og minni hlutans á Alþingi á árum áður, 2009–2012: Hvernig telur hv. þingmaður að minni hluti utanríkismálanefndar hafi lagt sig fram við að vinna að efnislegri umræðu og sátt um samningsmarkmið í nefndinni, ef við á? Í öðru lagi langar mig til að spyrja hv. þingmann með sama hætti og ég hef gert hér gagnvart öðrum fulltrúum í utanríkismálanefnd: Hvers vegna í ósköpunum valdi fólk að fara ekki að kynna sér þau gögn sem lögð voru fram af hálfu utanríkisráðuneytisins (Forseti hringir.) sem eðli máls samkvæmt eru bundin trúnaði samkvæmt þeim venjum sem ég veit (Forseti hringir.) að hv. þingmaður þekkir sem fyrrverandi starfsmaður og aðstoðarmaður utanríkisráðherra?