157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:23]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Til að greina nánar frá efni fyrri spurningar minnar um það hvernig minni hluti nefndarinnar hefði getað lagt sig fram við að vinna málið í sátt með meiri hlutanum, þá vil ég bara vísa til þess að hér er því haldið fram í áliti hv. þingmanns og ég vænti þess að það skýri sig sjálft. Hvernig hafið þið borið ykkur að með svipuðum hætti og þá var, ef við á?

Varðandi aðganginn að gögnunum þá hentar það málstað hv. þingmanns og annarra í minni hlutanum miklu betur að geta bara sagt: Hér voru gögn sem við megum ekki greina frá og þau voru pottþétt um aðlögun Íslands að Evrópusambandinu. Það er einhver sögn sem er mjög þægilegt að segja frá. Hefði hv. þingmaður kynnt sér gögnin gæti hann deilt því með almenningi að hér væri um að ræða önnur samskipti Íslands við ESB sem vörðuðu ekki samskipti um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og hugsanlegar aðildarviðræður vegna þess að þau gögn eru ekki til. (Forseti hringir.) Þetta varðaði almenn samskipti um önnur mál sem byrjuðu mörg hver og flest í tíð fyrri ríkisstjórnar. Það má vel greina frá því en það (Forseti hringir.) er ekki þægilegt fyrir minni hlutann.