157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:24]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að það gæti einhvers misskilnings hjá hv. þingmanni varðandi það hvað trúnaðarskylda þýðir. Það þýðir auðvitað það að hv. þingmönnum er hreinlega bannað að tjá sig um efni þess sem er að finna í þessum gögnum. Þar af leiðandi höfnuðu hv. þingmenn því að skoða þessi gögn. (Gripið fram í.) Ef það var eitthvað í þessum gögnum sem krafðist sérstaks trúnaðar hefði verið einfalt mál að strika út slíkar upplýsingar því hagsmunirnir sem fyrir liggja í þessu máli, um að upplýsa þjóðina, veita henni meiri upplýsingar en minni, vega hreinlega þyngra. Þó að það hefði kostað embættismenn einhverja handavinnu við að strika út einhverjar ákveðnar upplýsingar hefði það verið mér algerlega að meinalausu. Það kom fram í yfirlitinu að í yfir 50 skipti ræddi hæstv. utanríkisráðherra aðild Íslands að ESB við embættismenn og fulltrúa Evrópusambandsins og það var óskað eftir upplýsingum um nákvæmlega þessi samskipti og ekki neitt annað.

Varðandi það hvernig minni hlutinn hefði getað lagt sig fram við vinnu í nefndinni um hagsmunamat þá var hreinlega ekki boðið upp á slíkt. (DagH: Víst. )Það var hreinlega ekki boðið upp á neina slíka vinnu vegna þess að tillagan gengur út á það að það fari ekki fram vinna um greiningu á hagsmunum Íslands.