þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er búið að vera forvitnilegt að fylgjast hér vel með í dag. Ansi margt er sagt og maður vonar auðvitað stundum að menn séu að láta kappið svolítið bera sig ofurliði. Margt af því sem kom fram í ræðum fyrr gagnvart hæstv. utanríkisráðherra er ekki fallegt, verð ég að segja. Leyndarhyggja, blekking, það sé verið að semja um hluti án þess að hafa umboð til þess og annað. Ég veit ekki hvert menn eru komnir í umræðunni. Okkur getur greint á um hvort við eigum að ganga inn í Evrópusambandið eða ekki en að við séum að saka hvert annað um svona mikil óheilindi og svik gagnvart þjóðinni, sem í þessu tilfelli utanríkisráðherra er að vinna fyrir, þótt hann aðhyllist aðra stefnu en hv. þingmaður sem hér talaði — mig langar bara að spyrja, það væri ágætt að fá það fram: Telur hv. þingmaður að hæstv. utanríkisráðherra hafi framið einhvers konar landráð? (Forseti hringir.) Fáum þetta bara fram vegna þess að heldur betur hefur verið dylgjað um það hér í ræðum í dag. (Gripið fram í.)
(Forseti (EÁs): Forseti biður um hljóð í þingsal.)