þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Já, já, eitthvað hefur maður hitt á viðkvæman blett. Ég held að menn þurfi svolítið að kannast við inntakið í því sem menn eru að segja. Það er vel hægt að vera ósammála í þessum sal en ég held að við gætum talað öll af aðeins meiri virðingu um ætlan stjórnvalda á fundum og annað, vera að gera því skóna að eitthvað annað sé í gangi en er. Það eru ekkert annað en dylgjur, ekkert annað, og hefur margítrekað komið fram í dag og reyndar oftar í þessari umræðu. En mig langar að spyrja hv. þingmann líka hvað sé svona óskaplega hættulegt við að fara þessa leið. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einu sinni í fáeina mánuði verið í ríkisstjórnarsamstarfi með Viðreisn og þriðja flokki og þá var samið um að fara leið sem er mjög áþekk þeirri sem hér er verið að fara, bara mjög svo. Eftir mikið þrátefli, samningaviðræður og annað var það á endanum niðurstaðan. Ég held að umræðan í þessum sal og almennt þegar við þingmenn tökumst á um þetta, (Forseti hringir.) færi okkur heim sanninn um það að það sé auðvitað best og heppilegast að þjóðin segi stjórnvöldum (Forseti hringir.) hvað eðlilegast sé að gera frekar en að stjórnmálamenn haldi áfram að kýtast um þetta í einhverja áratugi til viðbótar.