157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:30]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður var örlítið rólegri og yfirvegaðri í þessu síðara andsvari þannig að ég þakka honum fyrir andsvarið. En margur heldur mig sig, mér heyrist á hv. þingmanni að það hafi verið hitt á viðkvæman blett hjá honum þegar hann kom hér upp og fór að þrugla um landráð. Ég var nú bara að fjalla um vangaveltur sem m.a. hafa verið mikið til umfjöllunar í íslenskum fjölmiðlum, útbreiddum fjölmiðlum, um yfir 50 fundi sem við fáum ekki aðgang að upplýsingum um hvað hafi átt sér stað á. Varðandi það að það sé verið að rifja upp söguna og eitthvert samkomulag um að það kæmi fram eitthvert gamalt þingmannamál — þetta er auðvitað eitthvað sem hv. þingmaður er vel þekktur fyrir, að fara frjálslega með sannleikann. Og hvort ég telji að þetta sé eitthvað hættulegt sem á sér hér stað; bara alls ekki. Ég sagði áðan, hv. þingmaður hefur kannski misst af því í ræðu minni áðan, að ég hlakkaði til að fara í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, ég mun taka þátt í henni. Ég hlakka til að gera út um þessa pólitísku óværu.