þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir aldeilis prýðilega ræðu. (Gripið fram í.) Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson, jú, hún var mjög góð. (Gripið fram í.) En byrjum bara á byrjuninni. Við erum rétt að skríða af stað núna í þessari síðari umræðu um málið og því rétt að byrja á byrjuninni. Hér er enn verið að halda því fram að Íslandi standi til boða, standi í einu til boða, varanlegar undanþágur frá stofnsáttmála Evrópusambandsins og að öll 27 aðildarríkin muni kvitta undir það; að Íslandi standi til boða að semja sig varanlega frá stærstu málaflokkunum, frá kvöðum sem öll hin ríkin hafa þurft að undirgangast, varanlegar undanþágur frá stofnsáttmála Evrópusambandsins í öllum mikilvægustu atriðum þjóðarinnar. Ég spyr því hv. þingmann: Er þjóðinni ætlað að trúa þessu? Hin spurningin til hv. þingmanns er: Er þetta heiðarleg nálgun gagnvart þingi og þjóð?