157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:33]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, það hefur komið fram í máli hæstv. ráðherra og hv. þingmanna að okkur standi til boða gull og grænir skógar, m.a. ýmiss konar undanþágur og ég veit ekki hvað og hvað. Það hefur hins vegar ekkert efnislegt komið fram um þetta, ekkert verið lagt fram, engar staðreyndir þessu til stuðnings. Það hefur verið vísað í óformlegt kaffispjall. Við höfum margspurt um þetta. Við höfum spurt um þetta á lokuðum fundum, við höfum spurt um þetta á opnum fundum og það hefur enginn getað lagt neitt fram þessu máli til stuðnings. Hv. þingmaður spyr hvort þetta sé þá heiðarleg framsetning og hvort þjóðin eigi að trúa þessu. Ef það lægi eitthvað þessu til grundvallar, ef það hefði t.d. farið fram mat hjá nefndinni á þessum atriðum, ef eitthvað hefði verið lagt fram því til stuðnings að við ættum von á fyrsta ótrúlega samningnum um aðild að Evrópusambandinu, þá væri það e.t.v. ekki óheiðarlegt. En ég veit ekki hvað skal segja ef það er ekkert sem býr að baki þessu nema það að einhverjir ráðherrar hafi rætt óformlega við kaffivélina á milli funda um alþjóðastjórnmál.