þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar að grípa aðeins niður í nefndarálit meiri hlutans í framhaldi af þessum tveimur spurningum sem ég spurði hv. þingmann að, og ég er forseta ákaflega þakklátur fyrir að fá hér tvær mínútur til þess sem er kannski ekki alveg í samræmi við fjölda andsvara. En það kemur hér fram, með leyfi forseta:
„Hvað varðar erlenda fjárfestingu í sjávarútvegi er grundvallaratriði að búið verði svo um hnútana að nýting auðlindarinnar og afrakstur hennar haldist áfram hér á landi.“
Ég spyr hv. þingmann: Kemur þetta í veg fyrir uppkaup á íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum? Ég spyr líka hv. þingmann: Hvað í þessum texta á að koma í veg fyrir það sem í daglegu tali er kallað kvótahopp?