þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Ég fór aðeins yfir það í ræðu minni og það kemur fram í nefndaráliti okkar í 3. minni hluta að við höfum áhyggjur af orðalagi. Annars vegar höfum við áhyggjur af óljósu orðalagi í áliti meiri hluta nefndarinnar og hins vegar höfum við áhyggjur af því að það sem þó stendur þar sé ekki skrifað inn í tillögutextann, af því að það var gert árið 2009. Það voru skýr skilaboð frá þinginu þá um að stjórnvöld færu með ákveðið veganesti, ákveðinn leiðarvísi til viðræðna við Evrópusambandið. Þannig að hvað svo sem stendur þar — af því að álitið ber með sér og það kemur þar fram að það verði gerð tilraun til þess að takmarka fjárfestingar eða halda reglum í sama horfi varðandi fjárfestingar erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum, en hvort sú krafa er ófrávíkjanleg, hvort þetta sé ein af þessum varnarlínum eða rauðu strikum sem verða dregin í þessari umræðu, hefur hreinlega ekki komið fram. Við erum hreinlega í mikilli óvissu um það og e.t.v. skýrist það hér á næstu dögum í þessari umræðu.