þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Þegar við ræðum stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu þá skiptir máli að við gerum það af þeirri yfirvegun sem hæfir máli af þessari stærðargráðu. Mér finnst við samt sem áður geta leyft okkur að sýna smá hita á sama tíma. Ég er enginn aðdáandi þess að tala niður pólitík eða tilfinningar í pólitík, þ.e. að maður megi ekki nálgast einstök stór mál eins og þessi út frá því hvernig mönnum líður hreinlega í hjarta með það. Það er í lok dags það sem mótar mann sem stjórnmálamann og sem borgara í þessu landi. Það er ekkert tilefni til þess að fela þær. Stundum líður manni bara á einhvern ákveðinn hátt með mál og Evrópusambandsaðild Íslands er fullkomið dæmi um slíkt mál. Þetta mál verður ekki bara rætt út frá staðreyndum, tölum og því sem stendur í þykkum bókum. Nei, tilhugsunin um að Ísland eigi aðild að Evrópusambandinu skapar bara mismunandi hughrif hjá fólki og okkur, stjórnmálafólki og almenningi í þessu landi, ber skylda til að virða það við hvert annað.
Það er ekki síst þess vegna sem við verðum að leyfa þjóðinni að eignast rödd í þessu máli og leiða það til lykta okkar á milli svo að spurningin hætti að kljúfa okkur, a.m.k. um fyrirsjáanlega framtíð, og hvaða stöðu við ætlum að eiga innan Evrópska efnahagssvæðisins. Þess vegna ætlum við að spyrja þjóðina hvernig hún sjái fyrir sér að Ísland verji og efli eigin hagsmuni í heimi sem hefur tekið grundvallarbreytingum á tiltölulega skömmum tíma. Það eru kostir við það að gera það á staðnum, á þeim vettvangi þar sem ákvarðanir eru teknar, með aðild að Evrópusambandinu, þar sem við eigum fulltrúa á svæðinu sem taka slaginn fyrir Ísland á hverjum einasta degi, á pólitískum forsendum út frá Íslandi og líka öðrum hagsmunum sem varða bara þeirra stjórnmálaskoðanir, vegna þess að hvað eru íslenskir hagsmunir? Þeir geta verið alls konar. Þau sem segja að það sé bara hægt að gera það sama með því að vera í EES verða að svara því hvernig við eigum að gera það vegna þess að óbreytt staða er flókin og hún er svo sannarlega uppfull af áskorunum, sem er ekki mikið rætt í daglegu lífi. Það er nefnilega orðið að mörgu leyti erfiðara að vera í EES en þegar við gengum þangað inn.
Spurningin sem við leggjum fyrir þjóðina snýst um það hvort Ísland eigi að hefja viðræður á ný og kanna hvort hægt sé að gera forsvaranlegan samning við Evrópusambandið og hvernig slíkur samningur gæti yfirhöfuð litið út, með það að markmiði að leggja hann síðan fyrir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu. Þau sem vilja teikna upp þá mynd að metnaðarfullur ráðherra ætli bara að fara út og semja um eitthvað vegna þess að viðkomandi langi svo ofsalega mikið að fara í Evrópusambandið gleyma dálítið að minnast á það að það er ekki bara undir ráðherrum þessarar ríkisstjórnar eða þessum þingsal komið hvernig þjóðin svarar því í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort þetta sé yfirhöfuð eitthvað forsvaranlegt og á borð berandi fyrir íslensku þjóðina.
Við setjum hins vegar markið hátt og erum ekkert hrædd við það. Við myndum fara hnarreist út til fundar við Evrópu og gera ýtrustu kröfur fyrir íslenska hagsmuni. Á þessum nótum er mjög hollt að rifja upp hvernig Íslendingar hafa áður tekist á við stórar ákvarðanir í utanríkis- og efnahagsmálum og ég sem íslenskur jafnaðarmaður er stolt af því hvernig Ísland hefur borið sig að í gegnum tíðina, að mestu leyti. Ég er t.d. mjög stolt af því hvaða ákvarðanir voru teknar í okkar þágu í upphafi lýðveldistímans þar sem styrjaldir loguðu um allan heim.
Við tókum það skref að gerast stofnaðili að Atlantshafsbandalaginu árið 1949, en berum árið 1949 aðeins saman við þann tíma sem við lifum núna. Sem betur fer tókum við ekki þá ákvörðun að leggjast bara lágt, láta lítið fyrir okkur fara eins og sumir leggja til að við gerum nú. Nei, við tókum þetta skref. Það var að sjálfsögðu í óþökk annarra stórvelda en það var að sjálfsögðu rétt ákvörðun fyrir Ísland. Þetta er algjörlega óumdeilt í þessum sal núna og við héldum áfram að sækja sigra sem smáþjóð. Þjóð sem hefði lagst lágt hefði ekki gert tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin 1951. Hún hefði ekki gengið í EFTA 1970. Hún hefði aldrei nokkurn tímann staðið jafn hart á sínu í þorskastríðunum þremur og hún gerði. Að kalla íslenska sendiherrann heim frá London? Nei. Hún hefði svo sannarlega ekki viðurkennt sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna þriggja; Eistlands, Lettlands og Litáens, fyrst vestrænna þjóða eftir fall Berlínarmúrsins eða þá jafnvel Palestínu síðar meir ef við viljum fara þangað, því að smáþjóð með sjálfstraust tekur slaginn fyrir sig og stundum líka fyrir aðra en fyrst og fremst fyrir sig.
Við megum heldur ekki gleyma því að þessi þingsalur logaði hreinlega stafna á milli þegar Alþingi samþykkti að gerast aðili að Evrópska efnahagssvæðinu. Þar efaðist fólk af allri sinni sannfæringu um getu Íslands til að taka þátt í Evrópusamstarfi án þess að það myndi tapa sínu sjálfstæði og fullveldi. Hérna var fullyrt um það af einlægri sannfæringu. Hvað hefur gerst og hvaða raddir voru þetta eiginlega? Þetta voru stjórnmálamenn sem vildu ekki veðja á vestræna samvinnu, mikið til sama fólk og vildi banna bjórinn, svona til að árétta það við hægra fólkið hérna inni í þessum sal: Já, þetta er sannarlega sama fólk og segir okkur núna að leggjast bara lágt og láta lítið fyrir okkur fara. Jú. (Gripið fram í: Þú veist ekkert hvað þú ert að tala um.) Hæstv. flissmálaráðherra hér í salnum hefur haldið því fram að hér viti sú sem hér stendur ekki um hvað hún er að tala og við tökum það samtal bara síðar.
Þetta fólk vanmat stórkostlega bæði getu íslensks samfélags og hagkerfis til að vaxa og stækka með frjálsum alþjóðaviðskiptum. Það sá ekki fyrir sér það sem gerðist, að aðgangur að mörkuðum Evrópu og fjórfrelsið opnuðu dyrnar fyrir einhverju stærra og öflugra en við höfum áður þekkt. Á þessum 30 árum hefur Ísland byggt eitt samkeppnishæfasta samfélag heims, styrkt sínar útflutningsgreinar og skapað íslenskum fyrirtækjum, almenningi og ekki síst ungu fólki aðgang að tækifærum sem stóðu fyrri kynslóðum ekki til boða.
Forseti. Þetta er algerlega óumdeilt. Það er enginn, lofa ég mér, tilbúinn til að mótmæla því að aðild að Evrópska efnahagssvæðinu hafi reynst farsælasta skref sem við höfum tekið í alþjóðaviðskiptum, a.m.k. ekki inni í þessum sal hér í kvöld. Þetta er okkar mikilvægasti og besti viðskiptasamningur. Svo er það annað mál að okkur greinir aðeins á um það hvernig við eigum að rækta hann, treysta hann í sessi og það hvort við viljum færa okkur upp á hærra plan, hvort það væri eitthvað betra, hvort það séu tækifæri í því að kanna það.
Á sama tíma og hér rættust ekki dómsdagsspár um að íslensk fyrirtæki færðust öll í erlenda eigu og að sjálfsmynd þjóðarinnar myndi hreinlega hverfa er hins vegar eitt og annað sem hefur reynst okkur Íslendingum áskorun í Evrópusamstarfi. Við höfum átt undir högg að sækja þegar kemur að íslenskri hagsmunagæslu. Hér er ég ekki að vísa til viðskiptaþvingana sem við höfum þurft að taka slaginn við á liðnum mánuðum, hér er ég einfaldlega að tala um daglega starfsemi EES-samningsins. Þetta sjónarmið fær ekki næga athygli í umræðunni. Staðreyndin er sú að sá hluti regluverks sem hefur áhrif á íslenskt samfélag er í síauknum mæli mótaður innan stofnana Evrópusambandsins áður en hann verður hluti af EES-réttinum. Það tekur langan tíma fyrir ESB-regluverk að verða tekið upp í EES-samninginn og leiða til réttarbóta fyrir íslenska borgara. Hér erum við bara að tala um löggjöf sem snertir fjármálamarkaði, neytendavernd, samkeppnismál, stafræna innviði, loftslagsmál, orkumarkaði, sífellt fleiri mál sem hafa bein áhrif á daglegt líf fólks, heimilin í þessu landi. Þess vegna tel ég að við eigum að tala af meiri hreinskilni um þessa íslensku reynslu. Það hefur ekki alltaf verið einfalt verkefni fyrir Ísland að aðlagast þessu regluverki.
Fyrst fólk talar hér um þá miklu ógn sem fælist í því að sækja um aðild að Evrópusambandinu, vegna þess að hér yrði umsvifalaust gerð krafa um óafturkræfa aðlögun, vil ég minna á það að hér ber okkur ekki að líkja stöðu Íslands við ríki sem hafa aldrei verið innan Evrópska efnahagssvæðisins og búa við réttarumhverfi sem er gerólíkt því sem við búum við. Það hefur ekki verið tekin afstaða af hálfu EES-ríkis til Evrópusambandsaðildar síðan Norðmenn greiddu atkvæði gegn því að ganga í Evrópusambandið árið 1990. Þetta er staðreynd. Þess vegna dugar ekki að benda á Króatíu varðandi það hvaða aðlaganir voru gerðar á innri markaðinum þar í landi. Það er hins vegar alveg hægt að benda á Króatíu varðandi hvaða afleiðingar upptaka evru hafði á hagkerfið þar. Ég ætla að geyma þá umræðu þar til síðar því hún er áhugaverð.
Við getum talað um regluverk Evrópusambandsins um fjármálamarkaði. Þessi löggjöf er mótuð út frá miklu stærri og flóknari kerfum heldur en við búum við hér á Íslandi og þar er ekkert hugsað um þau jaðartilfelli sem geta skapast í litlu samfélagi. Það er ekki verið að virða það markvisst að vettugi, það er bara enginn þarna úti til þess að tala íslensku röddinni og benda á það sem þarf að huga að. Þetta er sérstaklega nærtækt í orkumálum. Við sjáum það t.d. í stefnumótun Evrópusambandsins um eyríki. Þar er sannarlega tekið tillit til sérstöðu Tenerife og Kanaríeyja vegna þess að þær eru með fulltrúa þarna úti, eru með Spán. Ísland er ekki Tenerife, það er enginn að spá í hagsmuni Íslands sem þarf að huga sérstaklega að þegar um er að ræða landsvæði á jaðrinum, a.m.k. ekki kjörnir fulltrúar með pólitíska ábyrgð á bakinu.
Forseti. Ég nefni þessi dæmi og ég gæti nefnt fleiri til að benda á að Evrópusamstarfið er orðið flóknara. Það er alls ekki Íslandi óhagstætt, því fer fjarri, ég ítreka það. Ég held svo sannarlega með EES-samningnum. Það er enginn stjórnmálaflokkur á Alþingi tilbúinn til að a.m.k. segja það með yfirlýstum hætti að það eigi að skoða það að ganga úr Evrópska efnahagssvæðinu, enn þá a.m.k. Þess vegna þurfum við að standa í lappirnar og sýna aðeins úr hverju við erum gerð. Það stendur enginn vörð um Ísland annar en Ísland og hvernig ætlum við að verja landið okkar? Því að reynslan sýnir að það kann stundum að vera of seint að minnast á íslenska sérhagsmuni þegar málin eru komin langt áleiðis í gegnum hinar ýmsu EES-nefndir. Svo sannarlega er það of seint þegar við afléttum stjórnskipulegum fyrirvörum og tökum málin til 2. umræðu hér í þessum sal. Það þekki ég svo sannarlega sem framsögumaður ýmissa EES-gerða hér.
Í dag byggist stærsti hluti þessarar hagsmunagæslu Íslands, sem ég ætla ekki að gera lítið úr, á öflugri sveit íslenskra embættismanna sem starfa fyrir ráðuneytin og eru á vettvangi í Brussel, sem sinna mikilvægu starfi og vakta málin. Ég færi aldrei að tala verkefni þeirra niður en þetta eru embættismenn og þeir hafa aðgengi að fundum, geta talað við kollega sína, sem er vel. Þetta eru hins vegar áheyrnarfulltrúar og við sem erum kjörnir fulltrúar vitum vel að fundirnir eru toppurinn á ísjakanum. Þau samtöl sem skipta mestu máli eru þau sem eiga sér stað utan þeirra. Þess vegna vaknar sú eðlilega spurning hvort það sé forsvaranlegt fyrir Ísland að eiga nákvæmlega ekkert pólitískt fyrirsvar í ákvarðanatöku, að við verjum fullveldið okkar með þeim hætti að taka hér gerðir upp yfirleitt athugasemdalaust eða bara alls ekki. Íslenska þjóðin kýs enga fulltrúa til Evrópuþingsins sem taka þátt í mótun þessarar löggjafar frá upphafi. Við eigum ekki fulltrúa í ráðherraráðinu og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og fyrir smáríki sem getur og þorir er það slæmt.
Forseti. Í samningaferlinu, ef af því yrði, ætlum við að gera kröfur. Við förum yfir þær með yfirgripsmiklum hætti í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar og ég vísa til þess. Í orkumálum myndi meginmarkmiðið lúta að því að tryggja fullt forræði Íslands yfir eigin orkuauðlindum og sjálfstæði íslenska raforkukerfisins og ákvörðunarvald um nýtingu, eignarhald og uppbyggingu innviða.
Í sjávarútvegskaflanum gefum við í. Við höfnum því að erlend fiskveiðiskip komi hingað og veiði í íslenskri fiskveiðilögsögu af staðbundnum stofnum. Hér hefur því verið haldið fram að við séum eitthvað að gefa afslátt. Því fer fjarri. Það á að gera ýtrustu kröfur. Þjóðin verður svo sannarlega dómbær um hvort það séu forsvaranlegar niðurstöður, hverjar sem þær kynnu að verða. Evrópa getur svo sannarlega lært margt af Íslandi þegar kemur að sjávarútvegi og við eigum að vera tilbúin til að kenna þeim það.
Í landbúnaði verður að tryggja svigrúm til þess að verja íslenska matvælaframleiðslu, búfjárstofna, byggðir landsins og standa vörð um matvælaöryggi og sérstöðu íslensks landbúnaðar, sem býr við allt aðrar aðstæður en þekkjast víðast hvar í Evrópu. Við erum eina landið sem fellur undir flokk heimskautalandbúnaðar að öllu leyti. Fólk sem ætlar bara að horfa fram hjá því sem einhvers konar aukastaðreynd og líta á það sem einhverja sneypuför að benda á það í okkar samningaviðræðum — verðum við ekki aðeins að hafa trú á Íslandi og halda með Íslandi?
Forseti. Mig langar að þakka hv. utanríkismálanefnd fyrir samstarfið við vinnslu málsins. Hún hefði hins vegar að mörgu leyti mátt vera efnismeiri og betri og ég ætla að kasta því út í hafsauga að það hafi ekki gefist tími til þess að gefa sig að uppbyggilegri umræðu um það hvernig við mótum okkar markmið. Þar ber minni hlutinn líka ábyrgð, gefa sig að því. Við öfluðum sérfræðiálita og lögðumst yfir öll gögn sem okkur bárust í formi umsagna og þess sem liggur fyrir hjá íslenskum stjórnvöldum og kynntum okkur þau, a.m.k. í meiri hlutanum. Það er vel hægt að upplýsa um það að í þeim gögnum var ekki um að ræða upplýsingar sem fólust í einhverjum aðildarviðræðum eða undirbúningi þeirra. Það má vel gera grein fyrir eðli gagnanna með almennum hætti. Það verður þá að segjast hér og nú að dylgjur sem koma fram í alla vega einu minnihlutaáliti um að hér hafi verið um að ræða gögn sem fólust í einhvers konar undirbúningi að því sem koma skyldi ef þjóðin veitir umboð sitt til að fara í þessa vegferð — þessi gögn eru ekki þess eðlis, en það er óþægilegt fyrir minni hlutann að hafa kynnt sér þau gögn og þau verða að bera ábyrgð á því að geta ekki skilað þeim upplýsingum til almennings í landinu og sinna kjósenda. Hér er hverjum steini velt upp hjá fulltrúum minni hluta til að gera ferlið eins tortryggilegt og hugsast getur og ég held að við kæmumst bara langt áfram sem samfélag með því að reyna að taka skref til hvers annars. Sú sem hér stendur er sannarlega tilbúin til þess hér í þessum þingsal. En valdið er svo sannarlega hjá þjóðinni.
Ég verð að koma inn á þá leyndarhyggju sem er að myndast í umræðunni. Hún er ekki í boði meiri hluta utanríkismálanefndar. Minni hlutinn vænir okkur ítrekað um leyndarhyggju. Það er hins vegar stjórnarandstaðan sem er að standa í vegi fyrir því að almenningur eignist beina upplýsingalínu við Evrópusambandið. Ég fæ ekki betur séð en að minni hlutinn haldi því fram í sínum minnihlutaálitum, ítreka ég aftur, að þessi gögn hafi eitthvað að gera með þjóðaratkvæðagreiðsluna. Leyndarhyggjan sem hér er um að ræða er sú að það er ekki vilji til þess að sýna þjóðinni samning. Hvað er verið að fela? Er stjórnarandstaðan svona lafhrædd við það að hér gæti hreinlega legið fyrir ákjósanlegur og góður samningur sem þjóðin gæti fellt sig við? Ég spyr mig: Hvað er verið að fela? Hverju höfum við að tapa? Gætu komið einhvers konar styrkir til upplýsingaöflunar frá Evrópusambandinu til þess að standa vel að þessum samningaviðræðum og væri það svona hræðilegt? Verða gerðar óafturkræfar breytingar á íslensku stjórnkerfi ef við sækjum um aðild að Evrópusambandinu? Erum við eitthvað verr stödd eftir að hafa farið út í þennan leiðangur síðast? Hverjar voru þær óafturkræfu breytingar? Af hverju eru upplýsingar um aðild hættulegar? Af hverju að leyna þjóðina því sem henni gæti staðið til boða?
Ég upplifi, virðulegi forseti, að stjórnarandstaðan sé í harkalegri innbyrðis samkeppni um það hver geti verið mest á móti Evrópusambandinu. Ég bið alla þá sem vilja láta það sig varða að hætta að taka þátt í þeirri keppni. Hún er ekki skemmtileg. Sumir segja að EES-samningurinn sé frábær og mikilvægur en á sama tíma sé Evrópusambandið hnignunarbandalag, það sé ekkert um að semja, og það er verið að gera dauðaleit að gögnum frá 2009–2012 sem eiga að sýna fram á að þessari ríkisstjórn sé ekki treystandi til að fara með þetta verkefni.
Virðulegur forseti. Þessi gögn verða ekki fundin. Stöndum í nútímanum með nýju fólki í brúnni sem er tilbúið til þess að fara út og taka slaginn fyrir Ísland. Þetta er stórt tækifæri. Í fyrsta lagi að veita þjóðinni rödd með sama hætti og hefur verið gert fyrir öll nágrannaríki okkar þar sem þau hafa fengið að velja hvaða leiðir eru farnar í Evrópusamstarfi og það er virði í því að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. Ef við hefjum viðræðurnar á ný verður barist fyrir Ísland og ef niðurstaðan leiðir til þess að hér verði samningur sem þjónar landinu vel og hagsmunir okkar varðir verður hann lagður fyrir þjóðina. Ég ætla að halda með Íslandi í þessu máli. Við verðum áfram Ísland þó að við kynnum að ganga í Evrópusambandið og því segi ég, forseti: Áfram Ísland.