157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:57]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og vil segja að ég elska líka Ísland og er stoltur Íslendingur. Ég fór reyndar ekki í pólitík út af Evrópusambandsmálum en ég hygg að hv. þingmaður hafi kannski hafið sinn pólitíska feril með þátttöku í samtökum um aðild að Evrópusambandinu. Mín fyrsta spurning lýtur að því að fyrir síðustu kosningar þegar nýr formaður tók við Samfylkingunni, hæstv. forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, þá lagði hún þetta mál til hliðar. Mig langar að heyra hjá hv. þingmanni hvort henni hafi fundist það leitt að forsætisráðherra, sem leiddi Samfylkinguna í síðustu kosningum, hafi lagt Evrópusambandsaðild til hliðar.

Svo langar mig að spyrja út í stefnuyfirlýsingu þessarar ríkisstjórnar. Þar segir í lið 23 á síðustu blaðsíðu: Með utanríkisstefnu sem byggir á mannréttindum, friði, virðingu fyrir alþjóðalögum og náinni samvinnu við Evrópusambandið, önnur norræn ríki og Atlantshafsbandalagið. Mótuð verður öryggis- og varnarmálastefna. — Flott, það er búið. (Forseti hringir.) Svo segir hér: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu fer fram eigi síðar en árið 2027. Af hverju liggur okkur svona á? (Forseti hringir.) Þriðji punkturinn er: Í upphafi kjörtímabilsins verður óháðum erlendum sérfræðingum falið að vinna skýrslu um kosti og galla krónunnar og valkosti Íslands (Forseti hringir.) í gjaldmiðlamálum. (Forseti hringir.) Hefur þessi skýrsla eða þessi vinna hafist?