157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:59]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir góða spurningu og mér er bæði ljúft og skylt að svara því hvernig Evrópusambandsumræðan innan míns eigin flokks hefur snert mig persónulega. Það er ekki rétt að mín fyrstu afskipti af pólitík hafi átt sér stað í tengslum við Unga Evrópusinna, þar sem ég var reyndar formaður á árunum 2011 og 2012. Minn fyrsti pólitíski fundur var 2002 á vegum Ungra jafnaðarmanna hérna úti í Austurstræti. Valdi ég Samfylkinguna vegna þess að hún hafði m.a. sterkar skoðanir á Evrópumálum? Já, en ég er fyrst og fremst Íslendingur, ég er fyrst og fremst jafnaðarmaður og mamma. Svo er ég Evrópusinni líka vegna þess að ég tel að það séu tækifæri þarna úti. Varðandi hvernig Samfylkingin talaði í tengslum við Evrópumál í kringum síðustu kosningar verð ég bara að segja: Ég er skoðanasystir hæstv. forsætisráðherra í því hvaða mál okkur þótti æskilegt að leggja áherslu á fyrir þær kosningar. Ég er ánægð með þær breytingar sem og þær áherslur sem gerðar hafa verið á stefnu flokksins (Forseti hringir.) í málum sem varða sönn jafnaðarmál. Varðandi skýrslu Hagfræðistofnunar (Forseti hringir.) þá verður hv. þingmaður að spyrja hæstv. fjármálaráðherra.