þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og gott að heyra að hún er skoðanasystir hæstv. forsætisráðherra sem lagði Evrópusambandið til hliðar og lagði áherslu á önnur mál fyrir kosningarnar. Það er kannski ekki síst þess vegna sem við furðum okkur á því í stjórnarandstöðu að þetta virðist vera eitt helsta mál ríkisstjórnarinnar um þessar mundir. Reyndar segir í upphafi stjórnarsáttmálans, það á vel við að segja þetta í dag, með leyfi forseta: Ný ríkisstjórn gengur samstiga til verka. Ég veit ekki hvort hún er svo samstiga í dag um þetta mál. En svo segir: Fyrsta verk er að ná stöðugleika í efnahagslífi og lækkun vaxta með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins. Um leið mun ríkisstjórnin rjúfa kyrrstöðu og vinna að aukinni verðmætasköpun í atvinnulífi.
Ég er þeirrar skoðunar að ekkert af þessu hafi gerst en punktur nr. 23 er sannarlega á dagskrá, þ.e. aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það sem þó segir hér — ég held að hv. þingmaður hafi kannski ekki alveg heyrt það sem ég las upp því að ég las það svolítið hratt, en það segir hér í neðstu málsgrein: „Í upphafi kjörtímabilsins verður óháðum erlendum sérfræðingum falið að vinna skýrslu um kosti og galla krónunnar og valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum.“ (Forseti hringir.)
Hvar er þetta áhersluatriði sem (Forseti hringir.) átti að gera í upphafi kjördæmatímabilsins? Er það komið af stað?