þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég svara því aftur varðandi þessa vinnu um kosti og galla íslensku krónunnar. Sú vinna er á borði hæstv. fjármálaráðherra og ég bendi hv. þingmanni á að eiga orðastað við hæstv. fjármálaráðherra um það. Mér skilst að þetta sé á leiðinni en ég tel þó að það sé ekkert nýtt undir sólinni að við búum við mikinn óstöðugleika í gjaldeyrismálum á Íslandi og vísa m.a. til skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem utanríkismálanefnd gerði. Það hefur ekki áhrif á mig og mína skoðun en vissulega vona ég að þessi skýrsla og þessi greining birtist sem fyrst. Varðandi það að hér hafi verið lögð áhersla á fleiri mál en Evrópusambandið fyrir síðustu alþingiskosningar — fyrr má nú aldeilis fyrr vera. Okkur gekk vel að leggja áherslu á mikilvæg verkefni sem eru kjarnajafnaðarmál sem felast í því að það verður að nást hér efnahagslegur stöðugleiki og við ætlum að skila hallalausum fjárlögum og við ætlum að ná tökum á stjórn efnahagsmála í þessu landi. En vá, það er auðvitað mjög erfitt (Forseti hringir.) og enginn sagði að það yrði auðvelt, ekki síst ef við búum í mjög óstöðugu efnahagsumhverfi og það geisar stríð. (Forseti hringir.) Við erum viðkvæm fyrir því.