157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:03]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var svolítið áhugaverð. Hún fór yfir söguna og sagði að þeir sem væru á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu væru sömu pólitísku öfl og hefðu verið á móti bjórnum. Virðulegur forseti. Ég hvet hv. þingmann til að kynna sér málið. Það er flokkur hv. þingmanns, fyrirrennari hans, sem var á móti bjórnum.

En þetta var nú ekki eina málið. Málið er það að hv. þingmaður spyr: Af hverju má ekki koma með upplýsingar um aðild að Evrópusambandinu? Bíddu, er hv. þingmaður að segja, fyrrverandi starfsmaður utanríkisþjónustunnar í Brussel, fyrrverandi formaður Ungra Evrópusinna, fyrrverandi formaður Ungra jafnaðarmanna … (DagH: Nei. )— Fyrirgefðu. Þingmaður Samfylkingarinnar sem er með það á stefnuskrá sinni að fara í Evrópusambandið, veit hv. þingmaður ekki hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu? Er það þannig að Samfylkingin, sem hefur haft það á stefnuskrá sinni að ganga í Evrópusambandið, veit ekki hvað felst í að vera í Evrópusambandinu?