157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:05]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir að koma upp í andsvar við mig og spyrja mig tveggja frábærra spurninga, annars vegar um það hvort ég viti eitthvað um Evrópusambandið og hins vegar hvort ég hafi ekki örugglega rangt fyrir mér varðandi það hvort einhverjir einstaklingar hafi verið bæði á móti EES og á móti bjórnum. Ég er, til skýringar, að vísa í ummæli fyrrverandi fjármálaráðherra og formanns Alþýðubandalagsins og forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, sem mikið er vitnað til um þessar mundir vegna þess að hann hefur svo mikið fram að færa um það hvernig við eigum að haga okkur út á við sem þjóð og leggjast lágt. Hann var bæði á móti því að við gengjum í EES og á móti bjórnum.

Varðandi seinni spurningu hv. þingmanns um hvort ég viti eitthvað um Evrópusambandið þá ætla ég að segja: Já, ég veit eitthvað, (Forseti hringir.) en ekki allt, ekki frekar en nokkur inni í þessum sal.