þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Það var Sjálfstæðisflokkurinn sem var nú sá flokkur sem keyrði í gegn bjórinn, EES, EFTA og NATO en er ekki tilbúinn til að fara undir þetta pólitíska bandalag sem myndi ekki gagnast okkur og myndi þýða það að við værum að framselja löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald. En það sem mér finnst hv. þingmaður skulda okkur — hún hélt hér langa ræðu og bölsótaðist út í allt milli himins og jarðar, þá aðallega stjórnarandstöðuna — útskýrðu bara fyrir okkur hvernig það má vera að Samfylkingin sé með það á stefnuskrá sinni að ganga í Evrópusambandið en er ekki alveg viss um hvað þetta er. Við eigum bara að sækja um til að kanna hvað þetta er en við erum með það á stefnuskránni að fara inn.
Virðulegur forseti. Er þetta boðlegur málflutningur? Eða er það í alvöru þannig (Forseti hringir.) að Samfylkingunni með þetta stefnumál — þótt þeir hafi sagt (Forseti hringir.) að þeir ætli ekki að gera neitt í því á þessu kjörtímabili, látum það vera. (Forseti hringir.) Þeir eru með stefnumál og þeir vita ekki hvað felst í stefnumálinu.