þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Það skiptir ekki máli þótt þú vitir ekkert um Evrópusambandið og þótt þú vitir mjög mikið, sem ég veit að hv. þingmaður gerir, það kann samt að vera skoðanaágreiningur á milli þessara aðila sem búa yfir sömu þekkingu á því hvað þeir telja farsælast fyrir Ísland. Ég er þeirrar skoðunar einlæglega að við eigum að sjá samninginn vegna þess að við erum nú þegar í alþjóðastarfi sem heitir Evrópska efnahagssvæðið. Í því felst vissulega að einhverju leyti talsvert framsal. Það er hægt að hrista höfuðið yfir því og þar getum við verið ósammála.
Mig langar einlæglega til að fara af virðingu í þessa umræðu sem við stöndum frammi fyrir í sumar. Það er ekki alltaf sem við erum sammála en við skulum (Forseti hringir.) virða það að við höfum ólíka sýn á hlutina án þess að við séum að væna hvert annað vanþekkingu.